Góđar fréttir

Góđar fréttir: indverskur lćknir látinn laus gegn tryggingu

 

Binayak_Sen

Dr. Binayak Sen

 

Samviskufanginn dr. Binayak Sen, var leystur úr haldi ţann 26. maí eftir ađ hćstiréttur landsins úrskurđađi ađ hann skyldi látinn laus gegn tryggingu. Hann hafđi ţá setiđ tvö ár í fangelsi.

 

Amnesty International fagnar úrskurđinum en telur ađ ákćran á hendur honum sé rakalaus og af pólitískum toga spunnin. Amnesty International hefur ítrekađ hvatningu sína til indverskra stjórnvalda ađ láta allar ákćrur á hendur dr. Sen falla niđur tafarlaust.

 

Dr. Sen, sem var haldiđ í Raipur-fangelsi í Chhattisgarh-ríki, ţakkađi Amnesty International og öđrum mannréttindasamtökum sem barist hafa fyrir lausn hans. Hann sagđi ađ hann myndi áfram berjast fyrir mannréttindum í Chhattisgarh-ríki ţrátt fyrir morđhótanir frá stjórnvöldum og öđrum. Dr. Binayak Sen er frumkvöđull í heilsugćslu jađar- og frumbyggjasamfélaga í ríkinu, ţar sem lögregla og vopnađar sveitir maóista hafa átt í vopnuđum átökum seinustu sex ár.

 

Hann var handtekinn ţann 14. maí 2007 eftir ađ hann heimsótti leiđtoga maóískra samtaka í fangelsi, en samtökin eru bönnuđ í landinu. Fyrri heimsóknir hans í fangelsiđ höfđu allar fengiđ samţykki fangelsisyfirvalda.

 

Fangelsisdómurinn yfir dr. Sen er skýrt dćmi um misnotkun indverskra stjórnvalda á öryggislöggjöf til ađ ráđast gegn baráttufólki. Lögin bjóđa upp á misnotkun vegna ţess ađ skilgreining laganna á „ólögmćtu athćfi“ eru mjög lođnar og víđtćkar. Fráleitt er ađ telja friđsamlega mannréttindabaráttu „ólögmćtt athćfi“.

 

Dr. Binayak Sen hafđi gagnrýnt nýlega öryggislöggjöf skömmu áđur en hann var handtekinn. Hann hafđi einnig tilkynnt ólögmćt dráp lögreglu og Salwa Judum (vopnađra sveita tengdum stjórnvöldum)á adivasis (frumbyggjum)

 

Yfirvöld hafa enn ekki rannsakađ ţessi dráp međ fullnćgjandi hćtti.

 

Dr. Sen var hnepptur í varđhald í sjö mánuđi án ákćru og haldiđ í einangrun í ţrjár vikur. Margar ákćranna gegn honum eiga stođ í lögum sem uppfylla ekki alţjóđleg viđmiđ.



 

Hvađ ţú getur gert

Hvađ ţú getur gert

Taktu afstöđu gegn mannréttindabrotum

 

Gakktu til liđs viđ Amnesty International

Ţitt framlag vegur ţungt

 

Styrktu Amnesty International

Leggđu lóđ ţitt á vogarskálarnar

 




RSS:

RSS
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica heimasíđurheimasíđur - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.