Góðar fréttir
Góðar fréttir: Rússland færist nær afnámi dauðarefsingarinnar

Amnesty International fagnar ákvörðun stjórnarskrárdómstóls Rússlands sem færir Rússland skrefi nær afnámi dauðarefsingarinnar.
Dómstóllinn ákvað nýlega að framlengja núverandi aftökuhlé, sem átti að renna út í janúar, og lagði til að dauðarefsingin yrði afnumin með öllu.
Aftökuhlé hefur verið í gildi í landinu frá 1999. Amnesty International hefur hvatt rússnesk stjórnvöld til að afnema dauðarefsinguna í lögum og staðfesta viðauka nr. 6 við Mannréttindasáttmála Evrópu.
Rússland hefur lengi stutt afnám dauðarefsingarinnar á alþjóðavettvangi og löngu er kominn tími til að landið stígi síðasta skrefið og afnemi dauðarefsinguna í lögum.
Þegar Rússland gekk í Evrópuráðið árið 1996 lofuðu stjórnvöld í landinu að afnema dauðarefsinguna fyrir 1999. Hætt var að dæma fólk til dauða í Rússlandi árið 1998 og stjórnarskrárdómstóll landsins fyrirskipaði aftökuhlé árið 1999.

