Fréttir

Laus störf hjá Íslandsdeild Amnesty International

19.5.2004

Leitar eftir herferðarstarfsmönnum í félagaherferð.

Vilt þú leggja þitt lóð á vogarskál mannréttinda? Hefur þú áhuga á mannréttindum? Vilt þú starfa með öðru ungu og áhugasömu fólki á spennandi vinnustað?

Ert þú opin(n), jákvæð(ur) og áhugasöm/samur? Þá ert þú manneskjan sem að við leitum að!

Í starfi þínu sem herferðarstarfsmaður kemur þú fram fyrir hönd Amnesty International úti á götum, aflar nýrra félaga; þú vinnur minnst 3 daga í viku.

 

Á móti bjóðum við þér:

  • Fræðslu um mannréttindi og samskipti
  • Innsýn í starf alþjóðlegra félagasamtaka
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi og góða starfsfélaga
  • Sveigjanlegan vinnutíma - 15-28 tíma á viku
  • Góð laun

 

Hafðu samband:

 

Amnesty International

amnesty@amnesty.is

 

Amnesty International miðar að heimi þar sem sérhver einstaklingur nýtur allra þeirra réttinda sem fólgin eru í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og öðrum mannréttindasáttmálum. Með það að markmiði sinnir Amnesty International rannsóknum og grípur til aðgerða í því skyni að hindra og stöðva alvarleg brot á mannréttindum, í samræmi við þann tilgang samtakanna að efla virðingu fyrir öllum mannréttindum.





RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica