Fréttir

Vel heppnuð "tískusýning"

29.11.2004

Tveir aðgerðahópar Amnesty International, hópur 4 og MH-hópur, áttu veg og vanda af "áverkasýningu" í Iðu, Lækjargötu. Þekktar íslenskar konur tóku þátt í sýningunni, þær:

Unnur Ösp Stefánsdóttir,
Álfrún Örnólfsdóttir,
 Frá áverkasýningu í IðuElma Lísa Gunnarsdóttir,
 Laufey Brá Jónsdóttir og
Hólmfríður Anna Baldursdóttir.

Þær komu fram í fötum frá Spútnik og Rögnu Fróða.  Meðan sýningarstúlkurnar gengu fram las kynnir upp úr íslenskum dómsmálum um heimilisofbeldi  og sýningarstúlkurnar voru farðaðar eftir áverkalýsingum úr þeim dómsmálum. Þær töluðu í stað kvennanna sem urðu fyrir þessu ofbeldi.  Palli, úr hljómsveitinni Maus, sá um tónlistina.

Á sýningunni voru áverkar  heimilisofbeldis, sem sjaldnast eru sýnilegir, dregnir fram í dagsljósið og brotinn sá þagnarmúr, sem umkringir þetta samfélagsvandamál. Frá áverkasýningu í Iðu 2

 

Sýningin var vel sótt og vill Amnesty International þakka kærlega þeim fjölmörgum sem komu að undirbúningi sýningarinnar
 

 
 





RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica