Fréttir

Íran: Ekki fleiri innantóm loforđ – ekki fleiri aftökur á börnum

23.2.2005

Aftaka_i_Teheran

Frá aftöku í Teheran, Íran

Ţann 19. janúar 2005 tóku írönsk yfirvöld Iman Farokhi af lífi fyrir glćp sem hann átti ađ hafa framiđ ţegar hann var 17 ára gamall. Sama dag fullyrti sendifulltrúi írönsku ríkisstjórnarinnar í Genf ađ í Íran ćttu sér ekki stađ aftökur á börnum yngri en 18 ára.

Íranska ríkisstjórnin hefur margoft gegnum tíđina gefiđ yfirlýsingar ţess efnis ađ ekki fari fram aftökur á börnum sem brjóta lög, en stađreyndir málsins segja ađra sögu.

Síđan 1990 hafa 11 börn, sem gerst hafa lögbrjótar, veriđ tekin af lífi. Um ţessar mundir eru a.m.k. 30 önnur börn sem bíđa aftöku. Međal ţeirra er Ali, Sattar, Vahid og Mohammad T, allt börn undir 18 ára aldri. (Lesiđ meira um ţessi mál.)

Íran hefur nú ţegar skrifađ undir alţjóđasamninga sem banna aftökur á börnum, og á síđustu ţremur árum hafa írönsk stjórnvöld íhugađ lagasetningu sem banna mundi dauđarefsingu handa börnum undir 18 ára aldri. Ţađ er kominn tími til ađ Íran standi viđ alţjóđlegu loforđin og bindi enda á aftökur barna.

 

Taktu höndum saman međ Amnesty International og Nefnd Sameinuđu ţjóđanna um réttindi barna og skorađu á Íran ađ láta ţegar í stađ af öllum aftökum á börnum sem dćmd hafa veriđ til dauđa, og ađ dauđarefsing einstaklinga yngri en 18 ára verđi fyrir fullt og allt afnumin.

 

Gríptu til ađgerđa!

 

Prentađu út bréfiđ sem hér er ađ finna og sendu til íranskra stjórnvalda (Word útgáfa)

 

Prentađu út bréfiđ sem hér er ađ finna og sendu til íranskra stjórnvalda (txt útgáfa)

 

Auk ţess ađ senda til forseta Íran, getiđ ţiđ einnig sent bréf til forseta hćstaréttar. Heimilisfang hans er:

 

Head of the Judiciary

His Excellency Ayatollah Mahmoud Hashemi Shahroudi

 Ministry of Justice Park-e Shahr

Tehran, Islamic Republic of Iran

 Vinsamlega ávarpiđ hann: Your Excellency

 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.