Fréttir

Dropar af regni

Amnesty International á Íslandi í 30 ár

8.4.2005

Nýveriđ hófst í Ráđhúsi Reykjavíkur sýningin "Dropar af regni: Amnesty International á Íslandi í 30 ár". Sýningin gefur dálítiđ ágrip af ţeim fjölda einstaklinga sem félagar Íslandsdeildar Amnesty International hafa átt ţátt í ađ frelsa síđustu 30 árin. Ţessir einstaklingar voru fangelsađir fyrir ţćr sakir einar ađ tjá trú sína eđa skođanir, eđa vegna kyns síns og uppruna. Ţessa einstaklinga kallar Amnesty International samviskufanga.

Heiti sýningarinnar er tekiđ úr ţakkarbréfi samviskufangans Mohamed El Boukili frá Marokkó, sem lét svo um mćlt áriđ 1994:

"Á dimmustu tímum fangavistar minnar komu orđ ykkar og bréf sem dropar af regni, sem lengi hefur veriđ beđiđ eftir í endalausri eyđimörk. Frelsi mitt í dag er ávöxtur ţols ykkar og ţreks, vinnu og hugrekkis."

Amnesty félagar vinna ađ ţví ađ fá leysta úr haldi ţćr hundruđ ţúsunda fanga, sem sitja í fangelsum um heim allan vegna friđsamlegrar tjáningar skođana sinna eđa trúarbragđa. Ţeir skrifa bréf til valdhafa og ţrýsta á stjórnvöld, sem ábyrgđ bera á slíkum mannréttindabrotum, og til fanganna sjálfra, til ađ glćđa vonir ţeirra og trú á framtíđina, ţó ađ ţeir dvelji iđulega viđ hrćđilegar ađstćđur og megi ţola pyndingar og illa međferđ. Í texta ţessarar sýningar má sjá tilvitnanir í nokkur ţeirra ţakkarbréfa, sem ađ fangarnir hafa skrifađ til Amnesty félaga.

Sýningin verđur í Ráđhúsi Reykjavíkur til 18. apríl. Fyrirhugađ er ađ sýningin verđi síđan sett upp sem víđast.

Myndir_fra_afmaelissyning_(4)

                                                                    Frá sýningunni í Ráđhúsi Reykjavíkur

 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.