Heimildamyndasýning á vegum Amnesty International
Í Alþjóðahúsinu þriðjudaginn 24. maí, kl. 20
Kæru félagar,
Nú, í sumarbyrjun, mun Íslandsdeild Amnesty International sýna þrjár heimildarmyndir þriðjudaginn 24. maí, kl. 20. Allar heimildarmyndirnar eru tengdar baráttunni gegn ofbeldi í garð kvenna. Myndirnar, sem eru á dvd-formi, verða sýndar á tjaldi í sýningarsal á þriðju hæð Alþjóðahússins að Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík (skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu).
Sýndar verða þessar heimildarmyndir:
- Ciudad Juarez and Chihuahua: Search for Justice - heimildarmynd um mannshvörf og morð á ungum konum í Mexíkó, sem stjórnvöld gera fátt til að stöðva.
- Lives blown apart - heimildarmynd um áhrif stríðsátaka á líf kvenna.
- Loks verður sýnd heimildarmyndin Sudan: human rights under fire um mannréttindabrot í borgarastyrjöldinni.
Myndirnar taka alls um 1 klst í sýningu og eru með ensku tali. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Við viljum hvetja sem flesta Amnesty félaga, og aðra sem hafa áhuga á mannréttindum, til að mæta. Aðgerðahópur 1 hjá Íslandsdeildinni hefur veg og vanda að undirbúningi sýningarinnar.
Mætum öll!
