Fréttir

Heimildamyndamyndasýning í Alþjóðahúsi

Íslandsdeild Amnesty International sýnir heimildamynd um dauðarefsinguna. Í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 25. október kl. 20

24.10.2005

Næsta þriðjudag, 25 október, mun Íslandsdeild Amnesty International sýna heimildamyndina "Too Flawed to Fix". Heimildamyndin skoðar og afhjúpar brotalamir í bandarísku réttarkerfi, sem gera að verkum að saklausir einstaklingar eru teknir af lífi fyrir glæpi, sem þeir frömdu ekki.

Þó að heimildamyndin líti sérstaklega til beitingar á dauðarefsingunni í einu ríki Bandaríkjanna, Illinois, horfir heimildamyndin einnig til dauðarefsingarinnar almennt, fjallar um röksemdir, sem fylgjendur dauðarefsinga halda fram, og reynir að svara þeim.

Heimildamyndin verður sýnd í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18, og hefst sýningin kl. 20. Myndin er 1 klst. löng. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Að myndinni lokinni gefst gestum kostur á að:

  • skrifa undir bréf til stjórnvalda í Japan og þrýsta á afnám dauðarefsingar í Japan.
  • skrifa undir bréf til stjórnvalda í Sádi-Arabíu vegna einstaklinga, sem eiga á hættu að vera afhöfðaðir.

Við hvetjum alla, félaga og aðra, að koma og fræðast um dauðarefsinguna og leggja sitt af mörkum fyrir afnámi hennar. 

 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.