Jólakort Íslandsdeildar Amnesty International 2005 komið út
Jólakort Íslandsdeildar Amnesty International í ár prýðir málverk eftir Guðmundu Andrésdóttur, einn frumkvöðla afstrakt myndlistar á Íslandi, og félaga í Septem-hópi íslenskra myndlistarmanna.

Verkið er nafnlaust, og var málað árið 1972. Hægt er að panta kort með því að senda tölvupóst á amnesty@amnesty.is, hringja á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International, í síma 551 6940, eða senda fax í 561 6940.
Kortin eru seld 10 í pakka og kostar pakkinn 1000kr. Umslög eru innifalin í verðinu. Sendingarkostnaður að upphæð 200kr leggst ofan á verðið, ef senda á kortin til viðtakanda.
Fyrirtæki geta fengið kortin afgreidd óbrotin, sem auðveldar prentun sértexta.
