Fréttir

Aðventutónleikar Íslandsdeildar Amnesty International

Neskirkju við Hagatorg á alþjóðlega mannréttindadaginn, laugardaginn 10. desember

7.12.2005

Á alþjóðlegum mannréttindadegi 10. desember efnir Íslandsdeild Amnesty International til aðventutónleika. Tónleikarnir verða haldnir í Neskirkju við Hagatorg og hefjast þeir kl. 20.00

 

Á tónleikunum koma fram sellósveit hljóðfæraleikarara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Ingibjörgu Guðjónsdóttur söngkonu, Tríó Björns Thoroddsen og tónlistarhópurinn Rinascente.

 

Tónleikar Amnesty International á mannréttindadaginn eru orðnir fastur liður á aðventunni og fólk sameinar stuðning við mikilvægt málefni góðri stund með fögrum tónum. Dagskrá tónleikanna er bæði glæsileg og fjölbreytt.

 

Miðaverð er kr. 1.500 og ágóðinn af tónleikunum rennur óskiptur til mannréttindastarfs Amnesty International.

 

Forsala aðgöngumiða er í Tónastöðinni Skipholti 50d, og á skrifstofu Amnesty International að Hafnarstræti 15, sími 5516940,

netfang amnesty@amnesty.is

 

Efnisskrá:

 

  • Tríó Björns Thoroddsen: Björn Thoroddsen gítar Jón Rafnsson bassi. Kristjana Stefánsdóttir söngur

 

Jólatónlist í sveiflukenndum útsetningum

 

  • Sellóhópurinn: Auður Ingvadóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Hrafnkell Orri Egilsson, Lovísa Fjeldsted, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Richard Talkowsky, Sigurður Bjarki Gunnarsson, Sigurgeir Agnarsson

Sópran: Ingibjörg Guðjónsdóttir

 

Snorri Sigfús Birgisson (1954- ) Vögguvísa Snorra (Þorfinnssonar)

Leonard Bernstein (1918-1990) María úr fyrsta þætti West Side Story

Heitor Villa-Lobos (1887 - 1959) Bachianas brasileiras No. 5 fyrir sópranrödd og sellóhóp,

Aría Cantilena höfundur texta Ruth V.Correa

 

  • Tónlistarhópurinn Rinacente
Hallveig Rúnarsdóttir Sópran
Jóhanna Halldórsdóttir Alt
Hrólfur Sæmundsson Baritón
Hildigunnur Halldórsdóttir Fiðla
Steingrímur Þórhallsson Orgel
 
 
 
Hugo Distler (1908 - 1942)
Sálmur 490 Við þökkum guði glaðir


 

J. S. Bach (1685 - 1750)
Schliesse mein Herze - Úr jólaoratoríunni


 

Liljulagið
Forn íslenskur sálmur - texti e. Eystein Ásgrímsson munk


 

Heinrich Schutz (1586 - 1672)
O bone Jesu


 

Hugo Distler (1908 - 1942)
Sálmur 89 - Sjá morgunstjarnan blikar blíð


 

 

 





RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica