Fréttir

Amnesty-bíó

Heimildamynd um mannréttindi og olíuviðskipti

23.2.2006

mánudaginn 27. febrúar verður Amnesty-bíó. Þá sýnir Amnesty International heimildamyndina "The drilling fields", sem fjallar um mannréttindabrot og olíuvinnslu í Nígeríu. Sýningin hefst kl. 20.30 og tekur sýningin 50 mínútur. Myndin er með ensku tali og ótextuð.

Eftir sýninguna gefst fólki kostur á að skrifa bréf til forstjóra Shell og Chevron vegna mannréttindabrota í Nígeríu, sem fyrirtækin eru talin tengjast.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Við hvetjum alla, félaga og aðra, að koma og fræðast um fyrirtæki og mannréttindi, og leggja sitt af mörkum í þágu mannréttinda.





RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica