Fréttir

Allsherjarþing S.þ. samþykkir gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála

27.10.2006

Íslandsdeild Amnesty International fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu. Alþjóðlegur vopnaviðskiptasáttmáli mun tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot eru í hámarki og hætta er á vopnuðum átökum.

Á yfirstandandi allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna greiddu 139 ríki atkvæði með tillögu um gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála, Bandaríkin voru eina ríkið sem greiddi atkvæði gegn tillögunni.

Í október 2003 hóf Amnesty International í samvinnu við Oxfam og IANSA alþjóðlega herferð sem hefur það að markmiði að gerður verði alþjóðlega bindandi sáttmáli um vopnaviðskipti. Meira en milljón manns í 170 löndum hafa tekið þátt í herferðinni og farið fram á gerð slíks sáttmála og að harðar verið tekið á vopnasölu.  Ákvörðun allsherjarþingsins er því mikilvægur áfangi í baráttunni gegn óheftri vopnasölu sem leiðir til fátækar, átaka og mannréttindabrota.

 

Sjá nánar á www.amnesty.org og www.controlarms.org







RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica