Fréttir
Jólakort Íslandsdeildar Amnesty International 2006 komið út
Jólakort Íslandsdeildar Amnesty International í ár prýðir vatnslitamynd eftir Kristínu Arngrímsdóttur myndlistarkonu. Myndin ber heitið Ljósberi.

Hægt er að panta kort með því að senda tölvupóst á amnesty@amnesty.is, hringja á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International, í síma 511 7900, eða senda fax í 511 7901.
Kortin eru seld 10 í pakka og kostar pakkinn 1.200 kr. Umslög eru innifalin í verðinu. Sendingarkostnaður að upphæð 200 kr leggst ofan á verðið, ef senda á kortin til viðtakanda.
Fyrirtæki geta fengið kortin afgreidd óbrotin, sem auðveldar prentun sértexta.

