Fréttir

Morgunverðarfundur um stefnu stjórnmálaflokkanna í mannréttindamálum

mánudag 7. maí 2007, kl 8:30- 9:30, Blómasal Hótel Loftleiða

4.5.2007

Morgunverðarfundur Mannréttindaskrifstofu Íslands um stefnu íslenskra stjórnmálaflokka í mannréttindamálum verður haldinn í Blómasal Hótel Loftleiða mánudaginn 7. maí 2007, kl. 08.30-09.30

Frambjóðendur munu svara fyrirspurnum um stefnu flokks síns í helstu málum er snerta mannréttindi. Fyrir hönd flokkanna mæta eftirtaldir:

Atli Gíslason Vinstri grænum

Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylkingu

Ásgerður Jóna Flosadóttir Frjálslynda flokki

Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokki

Jónína Bjartmarz Framsóknarflokki

Lárus Vilhjálmsson  Íslandshreyfingunni

 

Aðgangur er öllum opinn en áhugafólk um mannréttindi er hvatt til að mæta. Aðgangur með morgunverðarhlaðborði kostar kr. 1.500.

Að fundinum stendur Mannréttindaskrifstofa Íslands en nánari upplýsingar veitir Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri í síma 8950085 /5522720,  icehr@humanrights.is.







RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica