Fréttir
Kína: Mannréttindi í ađdraganda Ólympíuleika
Íslandsdeild Amnesty International hefur sent Íţrótta- og Ólympíusambandi Íslands skýrsluna People‘s Republic of China. The Olympics countdown: Repression of activists overshadows death penalty and media reforms[1] sem gerir ítarlega grein fyrir ţeim mannréttindabrotum sem eiga sér stađ í ađdraganda Ólympíuleikanna í Peking í Kína á nćsta ári.
Amnesty International hefur fylgst međ mannréttindaástandinu í Kína í ađdraganda Ólympíuleikanna. Samtökin hafa séđ ríkara umburđarlyndi gagnvart ákveđnum ađgerđasinnum en yfirvöld halda ţó áfram ađ áreita ađra sem fjalla á umfangsmeiri hátt um mannréttindabrot.
Amnesty International vekur athygli á mismunandi viđmiđum fyrir innlenda og erlenda fjölmiđla, ţrátt fyrir ađ kínversk stjórnvöld hafi lofađ „fullkomnu fjölmiđlafrelsi“ á Ólympíuleikunum. Erlendir fjölmiđlar hafa fengiđ leyfi til ađ stunda fréttamennsku án ţess ađ ţurfa ađ sćkja um leyfi hjá yfirvöldum á svćđinu. Hins vegar er líklegt ađ almenningur í Kína fái ekki ađgang ađ erlendum fréttum um viđkvćm málefni, sérstaklega eftir nýjar reglur voru settar september 2006, sem styrktu yfirráđ stjórnvalda yfir dreifingu á erlendu fréttaefni í Kína. Ađgerđir stjórnvalda undanfarna mánuđi hafa einnig hert stjórn ţeirra á innlendum fréttamiđlum og vefmiđlum auk ţess sem ţau hafa ritskođađ netsíđur, blogg og greinar á veraldarvefnum.
Í byrjun árs voru áfrýjunarmöguleikar auknir í dauđarefsingarmálum. Amnesty International fagnađi ákvörđuninni í ţeirri von ađ hin nýja ráđstöfun myndi draga úr dauđarefsingum. Hins vegar er erfitt ađ meta áhrif hćstaréttar ţar sem gagnsći er lítiđ. T.d. upplýsti fréttamiđill í Xinhua ţann 19. mars ađ hćstiréttur hefđi fellt fjóra dauđadóma frá ársbyrjun. Hins vegar hefur Amnesty International fréttir af aftökum minnst 13 annarra einstaklinga.[2]
Amnesty International fćr enn frásagnir af einstaklingum sem eru settir í „endurmenntun gegnum vinnu“ og annars konar varđhald án ákćru, dóms eđa dómsumfjöllunar. Samtökin óttast ađ ţessar hörđu refsingar séu notađar til ađ halda smáglćpamönnum, umrenningum, fíkniefnaneytendum og öđrum burtu í ţví skyni ađ „hreinsa“ Peking fyrir Ólympíuleikana.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur Íţrótta- og Ólympíusamband Íslands til ađ kynna skýrsluna međal ţeirra sem standa ađ undirbúningi ađ ţátttöku Íslands á Ólympíuleikunum og vekja athygli á ţví misrćmi sem ríkir á milli raunverulegs ástands og loforđa kínverskra yfirvalda um endurbćtur í mannréttindamálum í tengslum viđ val á Peking sem Ólympíuborgar.
Íslandsdeild Amnesty International hvetur Íţrótta- og Ólympíusamband Íslands til ađ standa vörđ um Ólympíuandann og beita sér í ţágu úrbóta í mannréttindamálum í Kína.
[1] http://web.amnesty.org/library/Index/ENGASA170152007?open&of=ENG-CHN

