Fréttir
Mannréttindi á menningarnótt!
Vöfflur, kaffi, kakó, tónlist og mannréttindabarátta!
Samtökin bjóða öllum að heimsækja skrifstofuna, þiggja veitingar og skrifa undir póstkort til stjórnvalda víða um heim og þrýsta þannig á þau að virða mannréttindi. Starfsmenn segja frá starfi samtakanna.
Komið og kynnist starfinu betur
Lifandi tónlist verður spiluð meðan gestir þiggja veitingar.
