Fréttir

Jólakortapökkun laugardaginn 14. nóvember - taktu þátt

12.11.2009

Jólakort 2009 - Málverk af málverki eftir Húbert Nóa

Jólakortið 2009 - Málverk af málverki eftir Húbert Nóa

 

Íslandsdeild Amnesty International verður með jólakortapökkun laugardaginn 14. nóvember, frá kl. 14-17. Félagar og aðrir eru hvattir til að kíkja við smástund, hjálpa til við pökkun, nálgast jólakort 2009 eða úrval jólakorta fyrri ára.

Boðið verður upp á piparkökur, kaffi, gos og góða tónlist.

Jólakortapökkunin verður haldin á skrifstofu deildarinnar í Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.

Hægt er að nálgast kortin á netinu í Amnesty-búðinni.



 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.