Fréttir

KvikYndi sýnir The End of Poverty? - think again

13.11.2009

 

End_of_Poverty_umslag

 

Nú hefur Kvikmyndaklúbbur Akureyrar - KvikYndi tekið upp samstarf við Amnesty International um sýningar á myndum sem varða mannréttindi.

Fyrsta sýning verður sunnudaginn 15. nóvember klukkan 16:00 í salnum á efstu hæð í Rósenborg (fyrrum Barnaskóla Akureyrar).

Myndin sem sýnd verður heitir The End of Poverty? og er frá árinu 2008.
Í myndinni er leitað skýringa á orsökum fátæktar í heiminum eins og hún blasir við okkur í dag.

Leikstjóri myndarinnar er Phillipe Diaz en leikarinn Martin Sheen er þulur. Nóbelverðlaunahafarnir Joseph Stiglitz og Amartya Sen eru meðal þeirra sem fram koma í myndinni, ásamt fjölda annarra einstaklinga.

John Perkins sem starfaði sem „efnahagslegur málaliði“ (Economic hitman) hjá stóru ráðgjafafyrirtæki í Bandaríkjunum og hélt fyrirlestur fyrir fullum sal á málþingi sem Háskóli Íslands stóð fyrir í apríl síðastliðnum, kemur einnig fram í myndinni.

Þetta er margverðlaunuð mynd og hlaut meðal annars fyrstu verðlaun gagnrýnenda á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2008.

Hér er hægt að sjá sýnishorn úr myndinni á Youtube:

http://www.youtube.com/watch?v=LRZnEBFYNS0

Aðgangur er ókeypis eins og venjulega, allir velkomnir og frjálst er að taka með sér nesti, enda engin veitingasala á staðnum (örbylgjuofn er til staðar).



 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.