Fréttir

Aðgerðir Amnesty International í þágu einstaklinga

Alison Hill frá "Individuals at Risk" teyminu í aðalstöðvum Amnesty International heldur erindi um aðgerðir Amnesty International í þágu einstaklinga

30.11.2009

Allt frá stofnun Amnesty International fyrir tæpum 50 árum hafa samtökin barist fyrir einstaklinga sem sæta mannréttindabrotum. Samviskufangar hafa verið leystir úr haldi, komið hefur verið í veg fyrir aftökur, pyndingum hefur linnt og horfnir hafa komið fram. Ein grunnstoða mannréttindabaráttu Amnesty International er starf samtakanna í þágu einstaklinga sem sæta mannréttindabrotum.

Alison Hill er sérfræðingur í aðalstöðvum Amnesty International. Hún flytur fyrirlestur þriðjudaginn 1. desember kl. 20.00 í húsnæði Íslandsdeildar Amnesty International Þingholtsstræti 27, 3 hæð. Í fyrirlestri sínum beinir hún sjónum að rannsóknum og aðgerðum samtakanna í þágu einstaklinga.


Fyrirlesturinn fer fram í húsnæði Íslandsdeildar Amnesty International að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð.

Hvetjum alla félaga og aðra til að koma og heyra um aðgerðastarf alþjóðasamtakanna í þágu einstaklinga.


 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.