Fréttir

Lýđveldiđ Kongó: hćtta verđur ofsóknum gegn baráttufólki fyrir mannréttindum

23.2.2010

Timothee Mbuya

Baráttumađurinn Timothée Mbuya hefur fengiđ líflátshótanir međ sms

 

Amnesty International hvetur stjórnvöld í Lýđveldinu Kongó til ađ vernda baráttufólk fyrir mannréttindum, sem mega sćta geđţóttahandtöku öryggissveita og sífelldum líflátshótunum.

Í nýrri skýrslu, sem ber heitiđ „Human Rights Defenders under attack in the Democratic Republic of Congo“, skýrir Amnesty International frá ofsóknum á hendur átta ţekktum baráttumönnum fyrir mannréttindum í Kongó. Búast má viđ ađ ţćr ofsóknir magnist í ađdraganda ţing- og forsetakosninga áriđ 2011.

Stjórnvöld í Lýđveldinu Kongó verđa ađ tryggja tjáningarfrelsi í landinu og vernda baráttufólk fyrir mannréttindum í landinu gegn hótunum, geđţóttahandtökum og árásum. Margt baráttufólk er handtekiđ fyrir ţađ eitt ađ tala máli annarra.

 

Golden Misabiko, yfirmađur Katanga-deildar mannréttindasamtaka í landinu, var handtekinn af leyniţjónustu landsins í júlí 2009 eftir ađ samtökin birtu skýrslu ţar sem ţví var haldiđ fram ađ liđsmenn öryggissveita landsins tengdust ólöglegum námagreftri á mjög geislavirku úrani og öđrum málmum í Shinkolobwe-námunni í Katanga-hérađi.
Hann var í varđhaldi í nćstum mánuđ og síđan dćmdur í eins árs fangelsi, ţar af átta mánuđi skilorđsbundna, fyrir ađ hafa „birt ósannar upplýsingar“. Lögfrćđingar Golden Misabiko reyna nú ađ fá ţeim dómi hnekkt. Hann mátti ţola miklar líkamlegar og andlegar kvalir vegna skelfilegra ađstćđna í fangelsinu.

 

Robert Ilunga

Robert Ilunga

 

Leyniţjónusta landsins handtók Robert Ilunga, forsvarsmann mannréttindasamtaka í Kinshasa, og hélt honum í einangrun í níu daga í september 2009 eftir ađ samtök hans sendu út fréttatilkynningu ţar sem vinnuskilyrđi verkamanna í malarnámi í Kasangulu í Bas-Congo-hérađi voru harđlega gagnrýnd.


Leyniţjónusta landsins handtekur oft baráttufólk fyrir mannréttindum í Lýđveldinu Kongó, hneppir ţađ í varđhald og ógnar ţví. Amnesty International fćr reglulega fréttir af pyndingum og annarri illri međferđ í varđhaldsmiđstöđvum leyniţjónustunnar.


Einn baráttumađur fyrir mannréttindum í Kongó sagđi Amnesty International nýveriđ: „Ég veit ekki hversu mikiđ lengur ég get ţolađ álagiđ og andlegar ţjáningar vegna ţessara hótana, en ég stenst á hverjum degi ţá freistingu ađ hverfa aftur til venjulegs lífs međ fjölskyldu minni, af ţví ađ ég neita ađ láta ţagga niđur í mér međ hótunum“.

Baráttufólk fyrir mannréttindum í Kongó hefur tjáđ Amnesty International ađ árásum og handtökum hafi fjölgađ mjög áriđ 2009. Eftirlitsmenn Sameinuđu ţjóđanna (SŢ) í landinu hafa tekiđ undir ţetta.

 

Mörg ríki hafa lýst áhyggjum vegna stöđu baráttufólks fyrir mannréttindum í Lýđveldinu Kongó og lagt tillögur fyrir stjórnvöld í landinu viđ alţjóđlegu reglubundnu endurskođunina á Lýđveldinu Kongó á vegum Sameinuđu ţjóđanna (UN's Universal Periodic Review of the DRC) sem fram fór í Genf í desember 2009.

Sú endurskođun er tćkifćri fyrir Mannréttindaráđ Sameinuđu ţjóđanna til ađ rannsaka ástand mannréttinda í öllum ađildarríkjum SŢ. Hvert land sćtir endurskođun á fjögurra ára fresti til ađ tryggja ađ ríki uppfylli allar mannréttindaskuldbindingar sínar.

 

Stjórnvöld í Kongó hafa gefiđ til kynna ađ ţau styđji tillögur alţjóđlegu reglubundnu endurskođunarinnar um frekari ađgerđir og betri löggjöf til ađ tryggja réttindi baráttufólks fyrir mannréttindum og fjölmiđlafólks í landinu.

 

Amnesty International hvetur stjórnvöld í landinu til ađ gera ţćr breytingar eins fljótt og auđiđ er.

 

LESTU MEIRA:

Democratic Republic of Congo: Human rights defenders under attack in the Democratic Republic of Congo: campaign digest


 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.