Fréttir

Dyflinnargildran

Flutningur hælisleitenda til Grikklands

24.3.2010

Haelisleitendur_i_Grikklandi

Hælisleitendur í Grikklandi freista þess að leggja inn hælisumsókn sína

Stöðva þarf nú þegar framsal hælisleitenda til Grikklands frá ríkjum sem eiga aðild að Dyflinnar-reglugerðinni. Í nýrri skýrslu Amnesty International, Dyflinnar gildran, kemur fram að einstaklingar sem sendir eru til Grikklands á grundvelli Dyflinnar-reglugerðarinnar eiga á hættu að verða fyrir margvíslegum mannréttindabrotum, þar með talið að vera fluttir nauðugir til staða þar sem þeir eiga á hættu ofsóknir.

Í skýrslunni er að finna ítarlega úttekt á áhrifum Dyflinnar-reglugerðarinnar á réttindi hælisleitenda og nákvæma skoðun á aðstæðum þeirra í Grikklandi.


Dregið er fram hvernig grísk yfirvöld hafa brugðist að veita hælisleitendum sanngjarna málsmeðferð
. Þeir  hafa ekki  fullnægjandi aðgang að lögfræðiráðgjöf, túlkaþjónustu og nauðsynlegum upplýsingum.  Dæmi eru um að  hælisleitendum hafi verið vísað nauðugum til Tyrklands.

  

Fra_flottamannabudum_i_Grikklandi

Úr flóttamannabúðum í Grikklandi


Skýrsla Amnesty International sýnir fram á að forsenda Dyflinnar-reglugerðarinnar, að öll ríki sem eiga aðild að reglugerðinni veiti flóttamönnum samsvarandi vernd, stenst ekki.  Hælisleitendur sem koma fyrst til Grikklands standa oftar en ekki  frammi fyrir brotum á mannréttindum og ógn um öryggi sitt. 

Frá því í apríl 2008, hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatt aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar til að senda ekki hælisleitendur aftur til Grikklands.  Þessi krafa Flóttamanna-stofnunarinnar var gerð vegna alvarlegra bresta í meðferð hælismála í Grikklandi, auk þess sem móttaka og aðstæður hælisleitenda í landinu eru óásættanlegar. Rannsókn Amnesty International sýnir að ástandið hefur versnað enn frekar, einkum eftir gildistöku laga í júlí 2009 þar sem áfrýjunarréttur hælisleitenda er skertur.  

Það er ljóst að hælisleitendur í Grikklandi njóta ekki nauðsynlegrar verndar og réttindi þeirra eru ekki virt að fullu. Þrátt fyrir þetta halda ríki, sem eiga aðild að Dyflinnar-reglugerðinni, áfram að senda fólk til baka til Grikklands. Þau lönd sem endursenda hælisleitendur þangað verða að horfast í augu við þá staðreynd að  hælisleitendur þar njóta ekki þeirrar verndar sem alþjóðalög kveða á um. Amnesty International leggur til að öll aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar stöðvi nú þegar allan flutning hælisleitenda til Grikklands.

Íslandsdeild Amnesty International hefur sent dómsmála- og mannréttindaráðherra, Rögnu Árnadóttur, eintak af skýrslunni ásamt bréfi þar sem fram kemur krafa um að Ísland stöðvi nú þegar allan flutning hælisleitenda til Grikklands.

 

 




RSS:

RSS

RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.