Fréttir

Alvarlegir brestir í eftirliti með vopnasölu til Mið-Austurlanda og Norður-Afríku

20.10.2011

Bandaríkin, Rússland og ýmis Evrópulönd hafa á undanförnum árum selt mikið magn vopna til  Mið-Austurlanda og Norður-Afríku. Vopn voru seld til ríkisstjórna, áður en uppreisn almennings í löndunum hófst, vopnin voru afhent þrátt fyrir að miklar líkur væru á að þau yrðu notuð til að fremja alvarleg mannréttindabrot.  Í skýrslu sem Amnesty International hefur gefið út: “Arms Transfers To The Middle East And North Africa: Lessons For An Effective Arms Trade Treaty “ er greint frá vopnasölu til Barein, Egyptalands, Líbíu, Sýrlands og Jemen frá árinu 2005.

Niðurstöður skýrslunnar sýna glögglega skort á raunhæfu eftirliti með vopnasölu og undirstika þörfina á alþjóðlegum vopnaviðskiptasáttmála sem tekur fullt tillit til að mannréttindi séu ætíð virt.

Stjórnvöld sem í dag segjast standa í samstöðu með fólki í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku eru mörg þau sömu og hafa nýlega afhent vopn, byssukúlur og ýmis tól og tæki sem voru og eru notuð til að drepa, særa og handtaka friðsama mótmælendur í löndum á borð við Túnis, Egyptaland, Sýrland og Jemen.

Í skýrslunni er sjónum beint að vopnasölu síðustu ára til Barein, Egyptalands, Líbíu, Sýrlands og Jemen. Austurríki, Belgía, Búlgaría, Tékkland, Þýskaland, Indland, Ítalía, Spánn, Sviss, Rússland, Tyrkland, Úkraína, Bretland og Bandaríkin hafa selt vopna og/eða annan búnað.

Skýrslan greinir ítarlega frá því hvaðan vopnin til einstakra landa koma og bendir á nauðsyn þess að leggja þurfi strangt mat á hvert vopn eru seld til að tryggja að þau verði ekki notuð til að fremja alvarleg mannréttindabrot.

Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna er nú unnið að alþjóðlegum samningi um vopnaviðskipti.  Amnesty International vill m.a. með  útgáfu skýrslunnar ítreka nauðsyn þess að í þeim samningi verði skýrt kveðið á um mannréttindi til að koma í veg fyrir að kynnt verði enn frekar undir mannréttindabrot.

Hér er hægt að nálgast skýrsluna í heild sinni: file:///http:/www.amnesty.org/en/library/asset/ACT30/117/2011/en/049fdeee-66fe-4b13-a90e-6d7773d6a546/act301172011en.pdf





RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica