Fréttir

Jólakortin 2011 eru komin út!

Styrkið Amnesty International með kaupum á jólakortum frá okkur

21.11.2011

Íslandsdeildin hefur ætíð leitast við að fá verk íslenskra listamanna til að prýða kortin. Jólakort 2011 er eftir Daða Guðbjörnsson og heitir Vetrarmorgunn einhyrnings.

jolakort 2011 bls 1

Jólakort 2011: Daði Guðbjörnsson - Vetrarmorgunn einhyrnings

 

Hægt er að leggja inn pöntun á netinu (í Amnesty-búðinni: https://www.amnesty.is/amnestybudin/ ) og sendum við þér þá kortin í pósti (sendingarkostnaður leggst við verðið). 10 kort í pakka með umslögum kosta 1.500kr.

Hægt er að fá kortin með eða án jólakveðju (fyrir þá sem vilja sjálfir skrifa jólakveðjuna).

Einnig verða kortin til sölu á skrifstofu okkar og í verslunum Pennans, Eymundssonar, Mál og menningu, Iðu, Bókabúðinni Hamraborg, Úlfarsfelli, Bóksölu stúdenta og  annars staðar.

Takk fyrir stuðninginn!





RSS:

RSS

RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica