Wilter Nyabate

Stand Up United - alþjóðlegt lið til varnar mannréttindum

Amnesty_HM2010_Vefbordi_Nyabate

Amnesty_Vornin_hnappur1

 

Wilter Nyabate býr í Austur-Soweto í Kibera í Naíróbí, en Kibera er stærsta fátækrahverfi Nairobi. Hún á tvö börn og er eini matvinnungurinn á heimilinu, en starfar engu að síður að því að vekja athygli á óþolandi aðstæðum í samfélaginu.

 

FANGAR FÁTÆKTAR
Tæplega 25.000 manns búa í Austur-Soweto. Mannþrengsli eru mikil og hverfið allt er ekki nema tæplega 30 fótboltavellir að stærð. Íbúar búa í lélegu húsnæði með litlu aðgengi að hreinu vatni, skólplögnum, heilsugæslu, menntun eða annarri grunnþjónustu. Þó að vatnslagnir liggi gegnum Kibera og beini vatni að efnaðri hverfum í kring, geta íbúar fátækrahverfisins ekki nýtt sér vatnið.

Þeir búa einnig stöðugt við hættuna á þvinguðum brottflutningi úr því fábrotna húsnæði sem er heimili þeirra.

 

SKREF Í RÉTTA ÁTT
Keníska ríkisstjórnin hratt átaki úr vör árið 2008 til að bæta húsnæðismál í Kibera (the Kenya Slum Upgrading Programme) og ýmislegt jákvætt hefur gerst. En stjórnvöld hafa einnig brugðist á ýmsum sviðum.

Íbúar fá ekki nægilegar upplýsingar um verkefnið og hafa ekki átt kost á að taka þátt í ákvörðunum um framkvæmd verkefnisins. Stjórnvöld hafa heldur ekki gefið tryggingu fyrir því að íbúar verði ekki bornir út af heimilum sínum vegna átaksins. Íbúar óttast að nýju húsin muni ekki henta þeim og verði of dýr og að þeir muni því missa allt húsnæði vegna umbótanna.

Wilter Nyabate er óþreytandi í baráttu sinni fyrir því að komið verði til móts við óskir íbúanna.

 

Styddu Wilter Nyabate að ná marki sínu.







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica