Herferðir
HERFERÐIR
Endum ofbeldi gegn konum
Ofbeldi gegn konum er oft að engu haft og refsingar sjaldgæfar. Konur og stúlkur mega þola meira ofbeldi en aðrir - bæði í stríði og friði, af völdum ríkisvaldsins, samfélagsins og fjölskyldunnar. Líf án ofbeldis telst til grundvallarmannréttinda.
Óheft vopnaviðskipti á alþjóðavettvangi valda ómældum hörmungum um heim allan. Afleiðingarnar eru þær að á hverju ári eru þúsundir einstaklinga drepnir, særðir, neyddir til að flýja heimili sín og þeim er nauðgað.
Réttlæti í stríðinu gegn hryðjuverkum
Hið svokallaða „stríð gegn hryðjuverkum“ hefur grafið undan margvíslegum mannréttindum. Ríki hafa gripið til aðgerða sem alþjóðalög hafa bannað um langa hríð og leitast við að réttlæta þær aðgerðir í nafni þjóðaröryggis.

