Markmið AI

Markmið herferðar Amnesty International

Alþjóðlegt vandamál

 

Á heimilum og í samfélaginu, á stríðstímum og friðartímum, eru konur og stúlkur barðar, nauðgað, og drepnar án þess að refsing komi fyrir. Ofbeldi og hótanir um ofbeldi dregur úr möguleikum kvenna á því að njóta borgaralegra, stjórnmálalegra, félagslegra, efnahagslegra og menningarlegra réttinda sinna, og fyrir vikið erum við öll snauðari. Á meðan ofbeldi gegn konum fær þrifist verður ekki hægt að uppfylla þau fyrirheit sem er að finna í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.

Með því er ekki verið að gera lítið úr árangri kvennahreyfingarinnar og mannréttindahreyfingarinnar á alþjóðavettvangi, í einstökum löndum eða í samfélaginu. Með því er einungis viðurkennt að ótal konur mega þola líkamlegt, kynferðislegt og andlegt ofbeldi af hálfu náinna ættingja jafnt sem ókunnugra. Of mörg samfélög láta viðgangast að konur séu beittar ofbeldi og meina konum um frelsi til að lifa lífinu á þann hátt sem þær kjósa. Yfirvöld í samfélaginu og ríkisstjórnir vanrækja að koma í veg fyrir og refsa fyrir ofbeldisverk, og skapa konum aðstæður sem eru lausar við ofbeldi. Á átakasvæðum fremja bæði stjórnarherir jafnt sem andstöðuhópar óhæfuverk gegn konum sér að skaðlausu. Árangur stofnana Sameinuðu þjóðanna er misjafn og mætti verulega bæta á mörgum sviðum, og alþjóðlegar fjármálastofnanir og fyrirtæki bregðast skyldum sínum gegn konum.

Ofbeldi gegn konum er aldrei eðlilegt, löglegt eða viðunandi og slíkt ofbeldi á aldrei að líða eða réttlæta. Öllum - jafnt einstaklingum sem samfélögum, ríkisstjórnum og alþjóðastofnunum - ber skylda til að binda enda á slíkt ofbeldi og lækna þær þjáningar sem af slíku ofbeldi spretta.

Breytingar verða að eiga sér stað á alþjóðavettvangi, hjá ríkisstjórnum, og í samfélaginu öllu. Stjórnvöld verða að vera í fararbroddi slíkra breytinga, en einnig aðrar valdastofnanir samfélagsins, og einstaklingar. Virða verður alþjóðlega mannréttindasamninga, setja verður lög og nema lög úr gildi, mynda verður stuðningsnet, og umfram allt verður að breyta viðhorfum, fordómum og viðteknum skoðunum sem að næra og viðhalda ofbeldi gegn konum.

Til að varna ofbeldi gegn konum verðum við að:

 

  • Tala gegn ofbeldi gegn konum, hlusta á konur og trúa þeim;
  • Fordæma ofbeldi gegn konum sem helsta mannréttindahneyksli okkar tíma;
  • Takast á við stjórnvöld ef að þau verja ekki konur gegn ofbeldi, með því að refsa fyrir og bæta úr slíku ofbeldi gegn konum;
  • Vinna gegn trúarlegum, félagslegum og menningarlegum viðhorfum og staðalmyndum, sem að draga úr mennsku kvenna;
  • Stuðla að jöfnu aðgengi kvenna að stjórnmálavaldi, ákvarðanatöku og auðlindum; og
  • Styðja konur til þess að bindast samtökum til að stöðva ofbeldið.

 

Amnesty International mun starfa með kvenréttindafrömuðum og hópum sem vinna nú þegar að því að afhjúpa og bæta úr ýmsu ofbeldi. Amnesty International mun rannsaka og afhjúpa ofbeldisverk gegn konum og krefjast þess að slík ofbeldisverk verði viðurkennd, fordæmd á opinberum vettvangi og úr þeim bætt.

 

Á alheimsvettvangi fer herferðin gegn ofbeldi gegn konum fram á það að:

 

Leiðtogar heimsins, stofnanir og einstaklingar heiti því á opinberum vettvangi að gera Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna - sem lofaði jöfnum rétti og jafnri vernd allra - að veruleika fyrir allar konur.

 

Á alþjóðavettvangi fer herferðin gegn ofbeldi gegn konum fram á það:

 

Við allar ríkisstjórnir að þær:

  • Staðfesti og innleiði Samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gegn konum og viðauka hans, án fyrirvara.
  • Staðfesti Rómarsáttmála Alþjóðlega sakamáladómstólsins og innleiði lagasetningu til að enda refsileysi fyrir ofbeldi gegn konum í vopnuðum átökum.
  • Sameinast um alþjóðlegan vopnasölusáttmála til að stöðva síaukið flæði vopna sem notuð eru til að fremja ofbeldi gegn konum.
  • Við Sameinuðu þjóðirnar og svæðisbundnar stofnanir að þær hjálpi löndum til að:
  • Þróa aðgerðaráætlanir til að binda enda á ofbeldi gegn konum, og setja upp kerfi til að fylgjast með innleiðingu þeirra.
  • Innleiða með skjótum og fullnægjandi hætti ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna 1315 um konur, frið og öryggi, jafnframt þeim tillögum sem settar eru fram í rannsókn aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um Konur, frið og öryggi.

 

Á landsvettvangi mun herferðin gegn ofbeldi gegn konum:

 

  • Krefjast þess að öll lög verði afnumin sem að auðvelda eða hvetja til refsileysis vegna nauðgana eða morða á konum; sem að banna kynlíf einstaklinga, sem því eru samþykkir; sem að takmarka rétt kvenna til að velja sér maka; og takmarka rétt kvenna til heilsugæslu og fræðslu um barneignir og fjölskylduáætlanir;
  •  Fara fram á lagasetningu sem miðar að því að vernda konur, tryggja það að ofbeldi á heimilum sé litið jafn alvarlegum augum og annað ofbeldi, og að nauðganir og annað ofbeldi gegn konum verði gert refsivert.
  • Kalla eftir því að stjórnvöld landa og önnur yfirvöld fjármagni og styðji aðgerðir til að gera öllum konum kleift að lifa lausar við ofbeldi, aðgerðir eins og fræðslu, þjálfun og stuðningskerfi til styrktar fórnarlömbum ofbeldis, og mannréttindafrömuðum sem vinna að mannréttindum kvenna.
  • Hvetja stjórnvöld, fjármálastofnanir og fyrirtæki til að hamla gegn fátækt meðal kvenna með því að tryggja jafnan aðgang þeirra að efnahagslegum og félagslegum réttindum, þeirra á meðal aðgang að mat, vatni, eignum, atvinnu og félagslegum réttindum og með því að styrkja félagsleg öryggisnet, sérstaklega á tímum efnahagsþrenginga og upplausnar.

 

Í samfélaginu mun herferðin gegn ofbeldi gegn konum:

 

  • Hvetja samfélög til að skapa umhverfi sem styður konur og beitir sér gegn ofbeldi, með því að búa til stuðningskerfi og ferli sem að styðja konur, veita stuðning til fórnarlamba ofbeldis, og fræða um áhrif ofbeldis gegn konum, og tryggja að mannréttindafrömuðir úr hópi kvenna séu frjálsir að starfi sínu.
  •  Krefjast þess að konum sé veittur jafn aðgangur að ákvarðanatöku í valdastofnunum samfélagsins.
  •  Hvetja trúarstofnanir, og aðrar hefðbundnar valdastofnanir til að fordæma allt athæfi sem að stuðlar að ofbeldi gegn konum, og virða mannréttindi kvenna.
  • Krefjast þess að vopnaðir hópar geri hermönnum sínum og stuðningsmönnum ljóst að ofbeldi gegn konum er aldrei ásættanlegt, og að þeim ber að refsa sem að slík verk fremja. Vopnuðum hópum ber að sjá til þess að konur, sem búa á yfirráðasvæðum þeirra, þurfi ekki að þola mismunun og ofbeldi og tryggja það að þeir sem beita konur ofbeldi séu dregnir til ábyrgðar.
  •  Hvetja alla einstaklinga til að berjast gegn neikvæðum staðalmyndum um konur og veita viðnám gegn auglýsingum í fjölmiðlum og í skólakerfinu sem að kynda undir mismunun gegn konum og viðhalda ofbeldi gegn konum og stúlkum.
  •  Fara fram á það við samfélög að þau vinni með þeim sem verða fyrir ofbeldi til að þróa og innleiða aðferðir til að vinna gegn ofbeldi gegn konum.


 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.