Endum ofbeldi gegn konum

ENDUM OFBELDI GEGN KONUM

3.4.2008

 

Ofbeldi gegn konum er oft látið óátalið og sjaldan er refsað fyrir slíkt ofbeldi.

Konur og stúlkur sæta meira ofbeldi en aðrir – í stríði og friði, af hálfu ríkisvaldsins, samfélagsins og fjölskyldunnar.

Líf án ofbeldis eru grundvallarmannréttindi

Hvort sem um er á heimilinu eða átakasvæðum verður ofbeldi gegn konum að linna. Herferð Amnesty International gegn ofbeldi á konum:

 

  • Þrýstir á um innleiðingu núgildandi laga sem tryggja eiga réttlæti og þjónustu fyrir konur sem hafa mátt þola ofbeldi, þar á meðal nauðganir og annars konar kynferðisofbeldi
  • Kallar eftir nýrri lagasetningu sem tryggir mannréttindi kvenna
  • Krefst þess að lög sem mismuna konum verði felld úr gildi
  • Hvetur til að endi verði bundinn á ofbeldi gegn konum af hálfu ríkisvaldsins og erindreka þess
  • Vinnur að því að virkja konur






RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica