Lausnin

Lausnin

 

skorið á líflínur

 

Áætlað er að til séu um 639 milljón skotvopna í heiminum í dag, eitt skotvopn á hverja tíu manneskjur í heiminum. Það er áætlað að framleiddar séu um 16 milljarðar byssukúlna í heiminum ár hvert.

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, komst svo að orði árið 2002:

„... hin hóflausa uppsöfnun vopna í heiminum og ólögleg vopnasala ógna alþjóðafriði og öryggi heimsins, gera að engu vonir um félagslega og efnahagslega þróun, og setja framfarir í lýðræði og mannréttindum í uppnám.“

 

Vopnaviðskiptasáttmálinn

 

Nauðsynlegt er að ríki heimsins samþykki alþjóðlegan vopnasölusáttmála fyrir næstu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um vopn, sem fer fram árið 2006.

Það bráðvantar alþjóðlegan vopnasölusáttmála. Með slíkum sáttmála yrðu til lagalega bindandi ákvæði um vopn og vopnaflutninga og einnig tryggt að allar ríkisstjórnir starfi samkvæmt sömu grundvallarákvæðum. Þannig gætum við forðað því að vopn falli í hendur morðingja, sem láta sig mannslíf engu skipta og ríkisstjórna og vopnaðra hópa sem fótum troða mannréttindi.

 

Hvað myndi alþjóðlegur vopnasölusáttmáli hindra?

 

Það yrði áfram löglegt að selja vopn til lögregluyfirvalda sem að virtu grundvallarákvæði um valdnotkun og meðferð vopna.

Það yrði ólöglegt að selja vopn til lögregluyfirvalda sem ekki lyti reglum og starfaði í skjóli spillingar, og notaði vopn til að taka einstaklinga af lífi án dóms og laga og til að pynda það.

Það yrði löglegt að selja herflugvélar og þungavopn til herja sem að virtu að fullu alþjóðleg mannúðarlög.

Það yrði ólöglegt að selja sömu vopn til herja sem að notuðu vopnin til að ráðast gegn almennum borgurum í stað hernaðarskotmarka.

 

vopnasölusáttmáli

 

Þetta er hægt – sá árangur sem náðist með alþjóðlegu jarðsprengjubanni, sá árangur sem náðist við að fella niður skuldir þróunarríkja og koma á fót alþjóðlegum sakamáladómstól – allt mál sem að fyrirfram var talið vonlítið að koma í gegn sýnir að þetta er hægt – en til þess þurfum við á hjálp almennings að halda – við þurfum á þér að halda.

 

Öruggari samfélög

 

Ríkisstjórnir fara sér of hægt við að koma taumhaldi á vopnin. Herferðin hvetur til þess:

 

  • Á alþjóðavettvangi Ríkisstjórnir eru hvattar til að undirrita vopnasölusáttmála fyrir árið 2006, til að varna því að vopn séu flutt út til staða þar sem að líkur eru til að þau verði notuð til að fremja alvarleg brot á alþjóðlegum mannréttinda- og mannúðarlögum.
  • Á vettvangi svæðasamstarfs Ríkisstjórnir eru hvattar til að þróa og styrkja vopnasáttmála á eigin heimssvæði til að vernda og styrkja alþjóðleg mannréttinda- og mannúðarlög.
  • Heima fyrir Ríkisstjórnir eru hvattar til að auka eftirlit með vopnasölu í eigin landi og reglur til að fylgjast með vopnasölu og vernda borgara gegn vopnuðu ofbeldi, í samræmi við alþjóðalög og alþjóðareglur.
  • Í samfélaginu Áhrifavaldar í samfélaginu og bæjar- og sveitarfélög eru hvött til að grípa til aðgerða sem duga til að tryggja öryggi í samfélaginu, með því að hefta aðgengi að vopnum og eftirspurn eftir þeim í samfélaginu.

 



 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.