Ábyrgð fyrirtækja
Ábyrgð fyrirtækja
Öllum fyrirtækjum ber að virða mannréttindi í starfsemi sinni. Mannréttindabrot eru sérstaklega tíð í jarðefnavinnslu. Slíkt kemur ekki á óvart í ljósi áhrifanna sem jarðefnavinnsla hefur á umhverfið.
Barátta Amnesty International er lýtur að fyrirtækjum og mannréttindum miðar að því að knýja á um breytingar á lögum og reglugerðum til að tryggja að fyrirtæki beri ábyrgð á áhrifum starfsemi sinnar á mannréttindi
SHELL GERI HREINT FYRIR SÍNUM DYRUM
Árósar Níger eru eitt af 10 mikilvægustu votlendis- og árósakerfum heimsins. Þar búa 31 milljón manna. Þar er einnig að finna gífurlegar olíuauðlindir sem olíufyrirtæki hafa nýtt í áratugi.
Shell hefur unnið olíu í Nígeríu um áratuga skeið og verður að fara að breyta starfsemi sinni.
KREFJUMST RÉTTLÆTIS FYRIR LUBICON CREE-FRUMBYGGJA
Lubicon Cree frumbyggjar, sem búa í Little Buffalo í Alberta-fylki í Kanada, hafa barist fyrir því í þrjá áratugi að fá yfirráð yfir landi sínu og draga olíu-, gas- og timburfyrirtæki til ábyrgðar fyrir þau gríðarlegu spjöll sem fyrirtækin hafa unnið á umhverfi þeirra.
Stórfellt timburhögg, ásamt olíu- og gasvinnslu, hafa nærfellt eyðilagt hefðbundna lífshætti Lubicon Cree-frumbyggjanna.

