Fátækrahverfi

Yfir 100 milljón manns eru heimilislaus í heiminum en yfir milljarður býr í fátækrahverfum við óþolandi aðstæður.
Fólk í fátækrahverfum nýtur oft ekki allra mannréttinda, hvort sem um er að ræða skort á aðgengi að þjónustu, jafna vernd fyrir lögum, kynjajafnrétti eða vernd gegn ofbeldi. Mörg samfélög eru varnarlaus gagnvart þvinguðum brottflutningi. Þau geta einnig þurft að glíma við annars konar ofbeldi, heimilisofbeldi og fjárkúganir af hálfu lögreglu, glæpahópa og vopnaðra hópa.
Amnesty International vinnur með fólki í fátækrahverfum svo að það fái notið réttinda sinna. Í því felst að bundinn verði endi á þvingaðan brottflutning, tryggð löggæsla sem virðir mannréttindi og fólk í fátækrahverfum hafi aðgengi að réttlæti.
GEGN ÞVINGUÐUM BROTTFLUTNINGI Í SIMBABVE
Áætlað er að 700 hundruð þúsund manns hafi misst heimili sín, atvinnu eða hvort tveggja, í skipulögðum aðgerðum (Murambatsvina) stjórnvalda í Simbabve árið 2005. Bæði heimili og fyrirtæki voru rifin niður í aðgerðunum og beittu lögregla og her fólk gegndarlausu ofbeldi meðan á þeim stóð.
Gríptu til aðgerða vegna þvingaðs brottflutnings í Simbabve
GEGN ÞVINGUÐUM BROTTFLUTNINGI Í ANGÓLA
Rúmlega 10.000 fjölskyldur eru enn heimilislausar í Lúanda, höfuðborg Angóla eftir að hafa verið þvingaðar brott af heimilum sínum í júlí 2001. Lögregla, her, öryggisverðir og héraðsfulltrúar framkvæmdu útburðinn en ósjaldan var fólk beitt miklu ofbeldi meðan á aðgerðunum stóð.
Gríptu til aðgerða vegna þvingaðs brottflutnings í Angóla
