Mæðradauði
Meðganga er ekki sjúkdómur. Samt deyr ein kona á meðgöngu á hverri mínútu. Hægt er að koma í veg fyrir nær öll þessi dauðsföll, en 95% þeirra verða í þróunarríkjum.
Fátækt, ofbeldi og menntunarskortur leiða til þess að konur deyja að nauðsynjalausu á meðgöngu eða við barnsburð. Það hefur margvíslegar afleiðingar fyrir börn þeirra og samfélög.
Einungis ein af 30.000 konum deyr á meðgöngu í Svíþjóð; í Síerra Leóne er það ein af hverri átta. En í mörgum löndum, til dæmis Nepal, Sri Lanka og Hondúras, hafa aðgerðir stjórnvalda dregið úr mæðradauða.
Amnesty International berst gegn mæðradauða. Sú barátta er liður í baráttu samtakanna gegn fátækt og mannréttindabrotum sem viðhalda henni.
NÍKARAGVA: LÍFI OG HEILSU KVENNA ÓGNAÐ
Með algeru banni í Níkaragva á fóstureyðingum er stúlkum og konum meinað um nauðsynlega læknisþjónustu jafnvel þótt líf þeirra liggi við (sjá nánar hér), starfsfólki í heilsugæslu meinað að stunda skilvirka heilsugæslu og fjölgað í hópi þeirra kvenna er deyja á meðgöngu í landinu.
Gríptu til aðgerða gegn algeru banni á fóstureyðingum í Níkaragva !
PERÚ: HINDRANIR Í VEGI MÆÐRAHEILSU
„Heilsugæsla fyrir ófrískar konur í Perú er eins og happdrætti; ef þú ert fátæk og frumbyggi eru góðar líkur á að þú tapir alltaf.“ Nuria Garcia, rannsóknarteymi Amnesty International
Skýrsla Amnesty International, Fatal Flaws: Barriers to Maternal Health in Peru lýsir því hvernig ófrískar konur í Perú deyja vegna þeirra hindrana sem þær standa frammi fyrir, þeirra á meðal: slæmt aðgengi að neyðarþjónustu á meðgöngu, takmörkuð upplýsingagjöf um mæðraheilsu og skortur á starfsfólki í heilsugæslu sem talar mál frumbyggja.

