Tölulegar staðreyndir
Guantánamo - tölulegar staðreyndir
Um það bil 775 fangar hafa verið sendir í fangelsið í Gvantanamó frá 11. janúar 2002.
Um 430 fangar af meira en 35 þjóðernum voru í haldi í Gvantanamó í lok árs 2006.
Einstaklingar hafa verið handteknir í að minnsta kosti 10 ríkjum og fluttir þaðan til Gvantanamó án nokkurrar formlegrar dómsmeðferðar. Þetta eru Afganistan, Bosnía og Hersegóvína, Egyptaland, Gambía, Indónesía, Máritanía, Pakistan, Taíland, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Sambía.
Allt að 17 fangar voru undir 18 ára aldri þegar þeir voru handteknir; fjórir þeirra eru enn í haldi í Gvantanamó.
Um 345 einstaklingar hafa verið fluttir frá Gvantanamó til ríkja eins og Afganistan, Albaníu, Ástralíu, Barein, Bangladess, Belgíu, Danmerkur, Egyptalands, Frakklands, Þýskalands, Íraks, Jórdaníu, Kasakstans, Kúveits, Líbíu, Maldíveyja, Marokkó, Pakistans, Rússlands, Sádi-Arabíu, Spánar, Súdans, Svíþjóðar, Tadsjíkistans, Tyrklands, Úganda, Bretlands og Jemens.
Enginn fangi í Gvantanamó hefur verið dæmdur sekur um refsivert athæfi fyrir bandarískum dómstólum.
Tíu fangar voru ákærðir fyrir herdómstóli, sem Hæstiréttur Bandaríkjanna komst síðan að niðurstöðu um að væru ólögmætt.
Úrskurðað var um stöðu 558 fanga frá ágúst 2004 til mars 2005; 520 þeirra voru taldir „óvinveittir vígamenn“ af nefnd sem í voru þrír bandarískir liðsforingjar. Fangarnir fengu engan aðgang að lögfræðingum eða leynilegum sönnunargögnum sem nefndin notaði, sem einnig hafði heimild til að styðjast við gögn sem fengin voru með þvingunum.
Meira en 40 sjálfsvígstilraunir hafa verið skráðar í Gvantanamó; þrír menn létust í Gvantanamó í júní 2006 og eru þeir taldir hafa framið sjálfsmorð.
Við rannsókn á máli 500 fanga kom í ljós að einungis 5 prósent voru handtekin af bandarískum hersveitum; 86 prósent voru handtekin af pakistönskum hersveitum eða Norðurbandalaginu í Afganistan og færð í hendur Bandaríkjamanna, oft gegn greiðslu verðlauna sem námu þúsundum dollara.
Allt að 200 fangar hafa farið í hungurverkföll til að mótmæla kringumstæðum sínum og aðbúnaði í fangelsinu.
Fjórtán fangar voru fluttir til Gvantanamó í september 2006 eftir að hafa verið haldið í einangrun í leynilegum fangelsum bandarísku leyniþjónustunnar í allt að 4½ ár.

