Stöndum vörð um bannið við pyndingum

Stöðvið. Rannsakið. Ákærið.

Stöðvið pyndingar og illa meðferð í „stríðinu gegn hryðjuverkum“

 

 

Pyndingar eða sérhver önnur meðferð sem er grimmileg, ómannúðleg eða vanvirðandi er ósiðleg og ólögleg og ávallt röng.

Allar ríkisstjórnir ættu að fordæma slíkar misþyrmingar afdráttarlaust og aldrei líða að þær tíðkist, hvort sem er heima við eða erlendis.

Allar ríkisstjórnir ættu að beita landslögum og alþjóðalögum til að sækja sérhvern þann til saka sem er beint eða óbeint ábyrgur fyrir pyndingum eða annarri ómannúðlegri meðferð.

Engum ætti að halda með leynilegum hætti eða í einangrun. Við slíkar aðstæður er aukin hætta á pyndingum og illri meðferð.

Engan ætti að senda til ríkis þar sem hætta er á að viðkomandi verði pyndaður eða látinn sæta meðferð sem telst grimmileg, ómannúðleg eða vanvirðandi.

Öryggi okkar er ekki best tryggt með því að pynda fanga og láta þá sæta illri meðferð heldur með því að virða mannréttindi allra.

Pyndingar koma ekki í veg fyrir hryðjuverk. Pyndingar eru hryðjuverk.

Pyndingar og önnur ill meðferð skaða ekki einungis þolandann heldur einnig gerandann og þau þjóðfélög sem láta slíkt viðgangast. Pyndingar og ill meðferð er grimmileg, ómannúðleg og vanvirðandi gagnvart okkur öllum.

 

STÖÐVIÐ!



Í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ hafa Bandaríkin leitt atlöguna að alþjóðlegum mannréttindaviðmiðum – nú ættu þau að sýna fordæmi hvað varðar stuðning sinn við mannréttindi. Allar ríkisstjórnir verða að leggja sitt af mörkum.

  • Bindið enda á pyndingar og aðra grimmilega, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í „stríðinu gegn hryðjuverkum“: gerið það ljóst að slík meðferð sé ávallt bönnuð og verði ekki liðin.

 

  • Lokið fangabúðunum við Gvantanamó-flóa: lokið búðunum, ákærið fangana samkvæmt bandarískum lögum fyrir bandarískum dómstólum eða látið þá að öðrum kosti lausa úr haldi.

 

  • Stöðvið fangelsun á laun og einangrunarvist og „mannshvörf“ – þetta eru mannréttindabrot og kjöraðstæður fyrir pyndingar.

 

  • Bindið enda á þá iðkun að senda fólk til ríkja („framsal“) þar sem það má búast við að vera pyndað eða þola illa eða vanvirðandi meðferð.

 

  • Ekki láta diplómatísk loforð duga þegar ákveða þarf hvort einstaklingur á á hættu að vera pyndaður eða sæta illri meðferð ef hann er fluttur til annars lands.

 

  • Komið í veg fyrir að notaðar séu upplýsingar sem fengnar eru með pyndingum eða annarri grimmilegri, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

 

RANNSAKIÐ!

 

  • Bandaríkjaþing ætti að koma á laggirnar óháðri rannsóknarnefnd sem rannsaki aðgerðir allra stofnana Bandaríkjanna er koma að málum er snerta fangelsun og yfirheyrslur Bandaríkjamanna í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ hvar sem er í heiminum: í Bagram í Afganistan, Abú Graíb í Írak og annars staðar, þar á meðal í fangelsum á leynistöðum.

 

  • Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna ætti að skipa sjálfstæða rannsóknarnefnd (Special Counsel) sem rannsaki hegðun einstaklinga sem grunur leikur á um að hafi gerst sekir um glæpi í „stríðinu gegn hryðjuverkum“.

 

  • Í öllum fangelsum og varðhaldsmiðstöðvum ætti að leyfa alþjóðlegt og óháð eftirlit.

 

ÁKÆRIÐ!

 

  • Bandarísk yfirvöld ættu að sækja sérhvern þann einstakling til saka þar sem sönnunargögn liggja fyrir um að viðkomandi hafi framið, fyrirskipað eða leyft pyndingar eða aðra grimmilega, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð.

  • Öll ríki ættu að rannsaka og sækja til saka þá sem taldir eru hafa stundað pyndingar eða aðra grimmilega, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð, hvar sem hún hefur átt sér stað.


 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.