Gríptu til aðgerða

Einangrun og ill meðferð - meðferð farandverkakvenna í Jórdaníu

Tugþúsundir farandverkakvenna í Jórdaníu eiga á hættu að sæta einangrun, vinnuþrælkun og illri meðferð og njóta lítillar sem engrar verndar ríkisvaldsins. Farandverkafólk skiptir miklu fyrir efnahag Jórdaníu og eykur velsæld heimila þar sem það starfar og leggur eigin fjölskyldum og samfélögum til mikilvægar tekjur.

Margar farandverkakonur sæta vinnuþrælkun og illri meðferð:

  • Margar vinna 16 til 19 klukkustundir á dag og fá enga frídaga
  • Algengt er að þær sæti líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi
  • Mörgum er í raun haldið föngnum á heimili vinnuveitandans
  • Margar konur fá ekki borgað hluta launa sinna eða jafnvel öll laun sín, stundum í mörg ár

Atvinnulöggjöf í Jórdaníu veitti verkafólki sem vann á heimilum ekki sömu vernd og öðru verkafólki, þar á meðal tryggingu fyrir lágmarkslaunum, veikindaleyfum, eða frídögum. Lögunum var breytt til hins betra í sumar. Þing Jórdaníu samþykkti að vinna að löggjöf sem varðar farandverkafólk.

Þó að þetta sé skref fram á við þarf að gera meira til að tryggja að farandverkakonur njóti sambærilegra réttinda og kveðið er á um í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum.

 

Hvettu ríkisstjórn Jórdaníu til að tryggja að ný löggjöf tryggi í raun réttindi farandverkakvenna.

 

Prentaðu og sendu bréf til forsætisráðherra Jórdaníu


Góðar fréttir

Góðar fréttir: Jabbar Savalan leystur úr haldi í Aserbaídsjan

Jabbar Savalan sat í fangelsi í Aserbaídsjan í 11 mánuði fyrir skrif á Facebook. Hann var látinn laus þann 26. desember 2011 eftir að forseti landsins náðaði hann.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica