Gríptu til aðgerða

Ákall til Barack Obama, næsta forseta Bandaríkjanna: taktu forystu í mannréttindamálum

Barack Obama

Barack Obama

 

Árásirnar á Bandaríkin þann 11. september 2001 voru glæpur gegn mannkyni. Í kjölfarið hafa Bandaríkin brotið gróflega gegn mannréttindum í nafni baráttunnar gegn hryðjuverkum.


Grunuðum einstaklingum hefur verið rænt og þeir fluttir á laun í leynilegar varðhaldsstöðvar á vegum Bandaríkjanna eða þeir færðir í hendur yfirvalda í öðrum löndum þar sem þeir hafa átt pyndingar yfir höfði sér.

Einstaklingar hafa mátt sæta þvinguðum mannshvörfum. Enn er ekki vitað um afdrif ýmissa þessara einstaklinga.

Hundruð einstaklinga hafa mátt sæta ólögmætri handtöku og varðhaldsvist við aðstæður sem jafngilda grimmilegri, ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í fangabúðunum við Gvantanamó-flóa.

Embættismenn Bandaríkjanna hafa í raun viðurkennt að Bandaríkin hafi beitt pyndingum og annarri illri meðferð og áskilja sér rétt til að gera það áfram.

Viðbrögðum bandarískra stjórnvalda við birtingu upplýsinga um þessi mannréttindabrot hefur verið mjög áfátt og stundum hafa þau í raun hjálpað gerendum að skjóta sér undan ábyrgð sinni að alþjóðalögum.

 

Barack Obama, næsti forseti Bandaríkjanna, verður að grípa til tafarlausra aðgerða eftir að hann tekur við embættinu til að binda enda á þessa árás á mannréttindi.

 

Prentaðu út og sendu bréf til tilvonandi forseta Bandaríkjanna

 



 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Góðar fréttir: egypskur bloggari leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að egypskur bloggari hafi verið leystur úr haldi. Hann var handtekinn eftir að hann ýjaði að frændhygli innan herafla landsins á bloggi sínu.

 

Góðar fréttir: hvítrússneskur andófsmaður og rokkari leystur úr haldi í Úkraínu

Amnesty International fagnar því að hvítrússneska andófs- og rokktónlistarmanninum Igor Koktysh hafi verið sleppt eftir tvö og hálft ár í varðhaldi í Úkraínu.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.