Gríptu til aðgerða

Hótanir gegn Mariselu Ortiz Rivera og öðru baráttufólki gegn mannréttindum

Marisela Ortiz Rivera

Marisela Ortiz Rivera var gestur Amnesty International á Íslandi í mars 2007

 

María Luisa García Andrade og Marisela Ortíz Rivera hafa fengið sendar skriflegar líflátshótanir. Hótanirnar voru sendar nokkrum dögum eftir sýningu myndarinnar “Bajo Juárez: borgin sem étur dætur sínar”, sem er heimildamynd um morð á konum í Ciudad Juárez og Chihuahua-borg í Chihuahua-ríki.

Myndin fjallar meðal annars um Lilia Alejandra García Andrade, dóttur Norma Andrade og systur María Luisa García, en Lilia var ein þeirra myrtu. Þær síðarnefndu koma fram í myndinni, ásamt Mariselu Ortíz, en allar starfa þær í samtökunum Nuestras Hijas de Regreso a Casa (NHRC), sem berjast fyrir réttlæti til handa þeim konum sem hafa verið myrtar á svæðinu.

Vitni segir að dökklitaður bíll með reyklitum rúðum hafi ekið að heimili Maríu Luisa García í Ciudad Juárez þann 30. október meðan hún var ekki heima. Maður steig úr bílnum, braut rúðu heima hjá henni og henti inn stóru spjaldi þar sem hótað var að drepa hana og meiða börnin hennar.

Þann 5. nóvember fann Marisela Ortíz líka kort fyrir utan heimili sitt þar sem henni var hótað lífláti. Báðar konurnar hafa lagt fram kvörtun til yfirvalda.

Enn meiri ástæða er til að hafa áhyggjur af félögum í NHRC í ljósi þess að þeim hafa áður borist hótanir. Félögum í NHRC bárust hótanir í tölvupósti í maí 2008, í kjölfar sýninga á myndinni „Bordertown“, sem er lauslega byggð á sögum kvennanna sem hafa verið myrtar á svæðinu, en NHRC studdi við sýningu myndarinnar til að vekja athygli á morðum á konum í Ciudad Juárez.

Ekkert hefur miðað í rannsókn yfirvalda á hótunum gegn félögum í NHRC og fjölskyldum þeirra frá því að hótanirnar bárust í maí 2008. Marisela Ortíz Rivera og María Luisa García Andrade hafa fengið mjög takmarkaða vernd lögreglu, þrátt fyrir að Mannréttindanefnd Ameríkuríkja hefði skipað mexíkóskum stjórnvöldum að veita þeim vernd.

 

Prentaðu bréf og sendu til ríkisstjóra Chihuahua

 

Lestu meira um baráttu Mariselu og annarra:

http://www.amnesty.is/frettir/nr/1329

http://www.amnesty.is/frettir/nr/1321

http://www.amnesty.is/frettir/nr/1331
http://www.amnesty.is/frettir/nr/1487


Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica