Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: þrýstu á ísraelsk stjórnvöld vegna Gasa

Palestinumadur_fastur_i_rustum_eftir_sprengjuarasir_Israela

Palestínumanni bjargað úr rústum eftir loftárás Ísraela á Gasa

 

Ekki sér fyrir endann á hörmungunum á Gasa þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi samþykkt nær einróma ályktun 1860 þann 9.janúar síðastliðinn, um tafarlaust og varanlegt vopnahlé stríðandi fylkinga. Um 1.5 milljón óbreyttra borgara eru innilokaðir á Gasa-svæðinu þar sem þeir eru berskjaldaðir gegn mannfalli og eignaspjöllum. Á fyrstu tólf dögum átakanna létu rúmlega 670 Palestínumenn lífið og um það bil 3000 særðust í árásum Ísraelsmanna. Flestir hinna látnu voru óbreyttir borgarar, þeirra á meðal mikill fjöldi barna.

Á sama tímabili létust fjórir Ísraelsmenn, þar af þrír óbreyttir borgarar og nokkrir særðust, þegar vopnaðar sveitir Palestínumanna gerðu eldflaugaárásir á borgaraleg skotmörk í suður Ísrael.

Ekkert lát er á ofbeldinu; fjöldi fallinna borgara á Gasa eykst sífellt.

Þrýstu á ísraelsk stjórnvöld að binda tafarlaust enda á árásir sínar og leyfa flutning neyðargagna, flutning særðra og frjálsar ferðir óbreyttra borgara burt af átakasvæðinu, sem og frjálst aðgengi mannréttinda- og mannúðarstarfsmanna og fjölmiðlafólks að svæðinu.

 

Prentaðu bréf og sendu til forseta Ísrael

 

 




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica