Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: þrýstu á Barack Obama að binda enda á pyndingar

Barack Obama

Barack Obama

 

Barack Obama verður settur í embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar 2009. Margir bíða embættistöku hans með eftirvæntingu um stefnubreytingu Bandaríkjastjórnar í veigamiklum málum. Heimurinn mun fylgjast með og vænta jákvæðra breytinga í margvíslegum málum.

Amnesty International fer þess á leit við nýja forsetann að hann grípi til raunhæfra aðgerða til að sýna að ný Bandaríkjastjórn undir forystu hans muni virða alþjóðleg mannréttindi í baráttu sinni gegn hryðjuverkum.

 

Frá því árás var gerð á Bandaríkin þann 11. september 2001 hafa bandarísk stjórnvöld leyft og réttlætt mannréttindabrot í nafni þjóðaröryggis, þar á meðal ólöglega flutninga og varðhaldsvist, þvinguð mannshvörf, pyndingar og aðra grimmilega, ómannúðlega og niðurlægjandi meðferð.

Nýr Bandaríkjaforseti og Bandaríkjaþing verða að snúa við blaðinu. Barack Obama hefur þegar sagt að hann muni loka Gvantanamó og binda enda á pyndingar. Við erum ekki að fara fram á hið ómögulega.

 

Við höfum gátlista fyrir Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, fyrir fyrstu 100 daga hans í embætti. Fyrstu skref hans ættu að vera að:

 

  • tilkynna áætlun og dagsetningu um lokun Gvantanamó
  • banna pyndingar og aðra illa meðferð í samræmi við alþjóðalög
  • tryggja að óháðri rannsóknarnefnd verði komið á laggirnar, sem rannsaki brot bandarískra yfirvalda í „stríðinu gegn hryðjuverkum“

Þessum árangri er hægt að ná og þú getur hjálpað til. Farðu á www.obama100day.org í dag, skrifaðu undir ákallið og hvettu Obama til aðgerða.

 

LESTU MEIRA

Gátlisti fyrir nýjan Bandaríkjaforseta

USA: Counter Terror with Justice: A checklist for the next US President (5 November 2008)




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica