Gríptu til aðgerða
Gríptu til aðgerða: þrýstu á víetnömsk stjórnvöld að sleppa baráttumanni úr fangelsi

Vu Hung kennir eðlisfræði í framhaldsskóla, er giftur og á tvö börn. Honum var að sögn vikið úr starfi í júlí 2008 fyrir þátttöku í starfi lýðræðissinna, sem hafa staðið fyrir mótmælum gegn stefnu stjórnvalda frá því í desember 2006.
Vu Hung er einn a.m.k. níu einstaklinga sem voru handteknir í september 2008 í tengslum við ráðagerðir um friðsamleg mótmæli vegna deilna við Kína um landsvæði.
Amnesty International telur að þau hafi verið handtekin fyrir friðsamlega baráttu þeirra.
Heilsu Vu Hung hrakaði eftir að hann var handtekinn í september 2008. Heimildir herma að hann hafi verið laminn í yfirheyrslum og að hann hafi hafið hungurverkfall í kjölfarið. Hann var nokkrum sinnum fluttur á sjúkrahús 198, sem öryggisráðuneyti Víetnam rekur.
Vu Hung var í klefa með 50 öðrum föngum sem dæmdir voru fyrir margvíslega glæpi. Sumum þeirra var síðar sleppt í almennri sakaruppgjöf á Tet-hátíðinni í byrjun nýs tunglárs í Víetnam. Sumir fanganna hafa sagt að heilsu Vu Hung hafi hrakað mjög og ekki sé vitað hvar honum sé nú haldið. Lögregla heimsótti fjölskyldu hans um mánuði eftir að hann var handtekinn og bað hana um að undirrita skjal um að Vu Hung væri geðsjúkur. Slíkt vekur enn meiri áhyggjur af heilsu hans og meðferð í fangelsinu
Vu Hung var einnig í hópi 14 einstaklinga sem handteknir voru í apríl 2008 í mótmælum gegn stefnu kínverskra stjórnvalda meðan hlaupið var með Ólympíukyndillinn í gegnum Ho Chi Minh-borg. Þá sætti hann ofbeldi af hálfu lögreglu áður en honum var sleppt aftur.
Hvettu víetnömsk stjórnvöld til að upplýsa hvar Vu Hung og átta öðru baráttufólki er haldið. Þetta fólk var allt handtekið fyrir friðsamleg mótmæli í september 2008.
Prentaðu út bréfið hér að neðan og sendu til víetnamskra stjórnvalda:

