Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: hjálpaðu írönskum baráttukonum

 

Tvær forvígiskonur í Jafnréttisherferðinni

Forvígiskonur í Jafnréttisherferðinni

 

Jafnréttisherferðin er heiti á írönskum kvenréttindasamtökum sem komið var á fót árið 2006. Samtökin berjast fyrir afnámi misréttis gegn konum í íranskri löggjöf. Nokkrir aktívistar úr þeirra röðum hafa verið handteknir og dregnir fyrir rétt, ákærðir fyrir aðgerðir sem eru algerlega löglegar, t.d. að skipuleggja friðsamlegar samkomur, fræðslufundi og undirskriftasöfnun fyrir lagabreytingum.

Yfirvöld hafa a.m.k. 12 sinnum lokað fyrir aðgang heimamanna að heimasíðu samtakanna. Þeim hefur ítrekað verið neitað um leyfi til að halda opinbera fundi. Því halda aktívistarnir námskeið og fundi sína á heimilum vinveittra einstaklinga sem sumir hverjir hafa í kjölfarið verið kvaddir til yfirheyrslu af meðlimum öryggislögreglunnar.

Meðlimir Jafnréttisherferðarinnar hafa einnig verið hindraðir í að ferðast erlendis. Vegabréf Parvin Ardalan var gert upptækt í 72 tíma í mars 2008. Henni var bannað að ferðast til að veita mannréttindaverðlaunum Olof Palme viðtöku fyrir störf hennar í þágu kvenna í Íran.

Frá árinu 2006 hafa fjölmargir kvenkyns mannréttindafrömuðir verið handteknir og leiddir fyrir dóm. Flestar kvennanna hafa verið ákærðar fyrir óljóst orðuð öryggisbrot. Slíkar ákærur eru tæki lögreglunnar til að takmarka alþjóðlega viðurkennt tjáningarfrelsi kvennanna og rétt þeirra til að bindast samtökum við störf sín í þágu kvenréttinda og réttinda Kúrda í Íran.

Konur í Íran sæta umfangsmikilli lögbundinni mismunun. Þær eru útilokaðar frá lykilstörfum innan ríkisins. Þær geta t.d. ekki gegnt embætti dómara eða boðið sig fram til forseta. Glæpir gegn konum kalla á vægari refsingar en sömu glæpir gegn karlmönnum. Vitnisburður kvenna fyrir rétti er metinn til hálfs á við vitnisburð karlmanna. Karlmenn mega stunda fjölkvæni og hafa ótakmarkaðan lagalegan rétt til að skilja við maka sinn. Þann rétt hafa konur ekki.

 

Hvettu írönsk stjórnvöld til að láta af ofsóknum sínum gegn baráttukonum fyrir mannréttindum kvenna í Íran.


Prentaðu út bréfið hér að neðan og sendu til íranskra stjórnvalda:

 

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali



Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica