Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: ríkisstjórn Nepal verður að stöðva ofbeldi gegn konum

Konur sem berjast fyrir bættum mannréttindum eru ofsóttar, niðurlægðar og jafnvel myrtar fyrir þá vinnu.

Dr. Renu Adhikari, formaður WOREC

 

Konum í Nepal, sem berjast fyrir auknum mannréttindum kynsystra sinna og vinna í þágu fórnarlamba ofbeldis, stafar sífellt aukin ógn af líkamsárásum og er ítrekað hótað lífláti. Endurhæfingarstöð kvenna í Nepal (WOREC) skrásetti frásagnir yfir 40 baráttukvenna fyrir mannréttindum, sem sætt höfðu líflátshótunum og árásum árið 2008. Aukið ofbeldi á hendur baráttukonum fyrir mannréttindum kvenna hefur valdið starfsfólki WOREC miklum áhyggjum en í nóvember 2008 stóðu samtökin fyrir landsfundi í Kathmandu þar sem rúmlega 200 baráttukonur komu saman. Þær störfuðu fyrir ólíkar stofnanir, í mismunandi héruðum Nepal, en áttu allar sammerkt að vinna að bættum mannréttindum kvenna í landinu. Margar þeirra áttu einnig sameiginlegt að hafa sætt ofbeldi, kúgunum og hótunum en barátta þeirra gegn mismunun þykir samfélagslegt tabú. 

Rita_Mahato

Rita Mahato

 Konur úr grasrótinni, sem standa fremst í baráttunni gegn ofbeldi á konum, verða mest fyrir ofbeldi en þær sæta oft alvarlegum barsmíðum og eru jafnvel myrtar. Rita Mahato starfar sem heilsuráðgjafi hjá Endurhæfingarstöð kvenna. Í júní árið 2007 var henni hótað nauðgun og dauða þegar karlmenn úr Siraha hverfinu réðust inn á skrifstofu hennar. Lögreglan hefur enn ekki hafið neina rannsókn á málinu.

Baráttukonur fyrir mannréttindum í Nepal hafa lagt ríka áherslu á að ef þeim verði ekki tryggð nein vernd í starfi óttist þær bakslag í baráttuna.

Skrifaðu forsætisráðherra Nepal, Pushpa Kamal Dahal, bréf í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna og skoraðu á hann að tryggja að ríkisstjórn landsins taki upp stefnu sem snúi baki við hvers kyns umburðarlyndi (zero tolerance) gegn ofbeldi á konum og geri allt sem í sínu valdi stendur til að tryggja öryggi kvenna sem berjast fyrir mannréttindum í landinu, sérstaklega í dreifbýli.

 

Hvettu nepölsk stjórnvöld til að tryggja öryggi kvenna sem berjast fyrir mannréttindum í landinu.


Prentaðu út bréfið hér að neðan og sendu til nepalskra stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica