Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: þrýstu á stjórnvöld í Venesúela að verja mannréttindi kvenna!

Félagi í Amnesty International í Venesúela mótmælir ofbeldi gegn konum í landinu

Félagi í Amnesty International í Venesúelakrefst verndar og réttlætis fyrir konur í landinu

 

Í Venesúela þjást þúsundir kvenna sökum líkamlegs, kynferðislegs og andlegs ofbeldis af hálfu fjölskyldumeðlima. Árið 2007 hringdu um 4500 konur í hjálparlínu á vegum Stofnunar um málefni kvenna og báðu um aðstoð vegna ofbeldis.

Árið 2007 settu yfirvöld í Venesúela lög er kveða á um að allar konur eigi rétt á ofbeldislausu lífi. Lög þessi eru vissulega dýrmætt tæki til að efla aðgengi kvenna að réttindum sínum og bæta líf þúsunda kvenna. Hins vegar hefur framkvæmd laganna verið mjög ábótavant og því halda konur áfram að þjást. Konur hafa enn litla möguleika á að tilkynna misþyrmingar til yfirvalda og eru margar enn fastar í ofbeldisfullum aðstæðum.

Helsta ástæða þess að lítill árangur hefur náðst í að minnka ofbeldi gegn konum í Venesúela er skortur á athvarfi fyrir konur sem hafa sætt illri meðferð. Áðurnefnd lög frá árinu 2007 gera ráð fyrir að tryggja skuli öryggi þeirra kvenna sem sætt hafa ofbeldi en aðeins eru tvö athvörf á vegum stjórnvalda þar sem konur geta leitað skjóls. Um 10 milljónir kvenna búa í Venesúela og er mikil þörf fyrir fleiri kvennaathvörf.

Auk skorts á athvörfum verða konurnar að geta treyst sér til að tilkynna ofbeldi til lögreglunnar. Til að svo megi verða verður að upplýsa lögreglu landsins betur um innihald laganna og þjálfa hana í að taka vel á móti þeim konum sem vilja kæra ofbeldi. Lögin frá 2007 um rétt kvenna gera kröfu á stjórnvöld að ábyrgjast slíka þjálfun lögreglunnar. Það hefur hins vegar ekki gengið eftir og eru flestar lögreglusveitir óhæfar að eiga við mál sem varða ofbeldi kvenna.

 

Skrifaðu bréf og þrýstu á stjórnvöld í Venesúela að grípa til viðeigandi aðgerða til að verja rétt kvenna!


Prentaðu út bréfið hér að neðan og sendu til stjórnvalda í Venesúela:

 

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali



Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica