Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: kona leitar réttlætis vegna nauðgunar

 

Bárbara Italia Méndez

Bárbara Italia Méndez

 

Bárbara Italia Méndez var hneppt í varðhald þann 4. maí 2006 í San Salvador Atenco í Mexíkó-ríki. Lögreglumenn lömdu hana, hótuðu henni og nauðguðu. Embættismaður hjá ríkissaksóknara landsins neitaði að skrá kvörtun hennar til embættisins og hún fékk ekki viðunandi læknisskoðun. Henni var sleppt gegn tryggingu skömmu síðar. Tvö ár tók fyrir hið opinbera að fella niður ákæru á hendur henni fyrir árás á almenningsvegum.

Frekari upplýsingar 27. apríl 2009

Þann þriðja og fjórða maí 2009 voru þrjú ár liðin frá mótmælunum í San Salvador Atenco, en í þeim voru Bárbara Italia Méndez og margar aðrar konur handteknar og sættu líkamlegu, sálrænu og kynferðislegu ofbeldi af hálfu lögreglu.

Í tilefni þess að þrjú ár hafa liðið án fullnægjandi réttlætis hafa konurnar frá Atenco ákveðið að nota mariposa (fiðrildi) til að tákna málstað sinn.

Þú getur halað niður sniði að pappírsfiðrildi (frá bresku deild AI) sem þú getur klippt út, skreytt og sent til forseta Mexíkó ásamt bréfi og hnykkt þannig á stuðningi þínum við konurnar frá San Salvador Atenco.

 

Þrýstu á yfirvöld í Mexíkó !

Prentaðu út pappírsfiðrildið

Prentaðu út bréf til forseta Mexíkó

 

 

Bakgrunnsupplýsingar:

Bárbara Italia Méndez bíður enn eftir réttlæti, tveimur árum eftir að lögreglumenn nauðguðu henni. Að kvöldi dags 3. maí 2006 fór hún til San Salvador Atenco í Mexíkó-ríki til að sýna í verki stuðning sinn við samfélagið þar eftir að átök milli lögreglu og mótmælenda leiddu til dauða barns. Hún leitaði skjóls fyrir lögreglunni, sem hafði þröngvað sér inn í þorpið til að brjóta mótmæli á bak aftur og frelsa lögreglumenn, sem haldið var föngnum.

Daginn eftir handtók lögregla hana án nokkurra skýringa. Lögreglumennirnir rifu í hár hennar og lömdu hana þannig að hún hlaut áverka á höfði og marbletti víðs vegar um líkamann. Þeir settu hana inn í farartæki og létu hana liggja ofan á öðrum einstaklingum, sem einnig voru handteknir.  Hún var neydd til að afklæða sig og lögreglumenn lömdu hana og nauðguðu með hlutum, meðan starfsfélagar þeirra fylgdust fagnandi með. Hún er ein 26 kvenna sem segja að þær hafi sætt kynferðislegu ofbeldi og öðru ofbeldi eftir að þær voru handteknar dagana 3. og 4. maí.

Bárbara Italia Méndez var flutt í „Santiaguito“ fangelsi nærri Toluca í Mexíkó-ríki þar sem hún gekkst undir læknisskoðun. Fangelsislæknarnir skráðu ekki öll meiðsl hennar og rannsökuðu ekki kynferðislega áverka. Sérfræðingar frá embætti ríkissaksóknara Mexíkó-ríkis rannsökuðu hana síðar; en samkvæmt Bárbara Italia Méndez var rannsóknin takmörkuð, niðurlægjandi og hún var ekki tekin í ítarlegt viðtal um atburðina.

Hún var síðan færð fyrir fulltrúa frá ríkissaksóknaraembættinu, sem sagði að ástæðurnar fyrir handtöku hennar væru „ókunnar“.

Hún fékk ekki að ræða við lögfræðing, sem gæti aðstoðað hana og neitaði því að gefa yfirlýsingu um atburðina, en mótmælti þess í stað nauðguninni og öðru ofbeldi sem hún sætti. Þegar hún svo útbjó yfirlýsingu reif embættismaður yfirlýsinguna og sagði að hún gæti aðeins svarað fyrir það sem hún var að gera í San Salvador Atenco.

Mikil mótmælaalda reis þegar fréttir bárust af ofbeldinu gegn mótmælendunum sem varð til þess að skrifstofa ríkissaksóknara hóf loks rannsókn á atburðunum. Enginn þeirra sem bar ábyrgð á ofbeldinu hefur enn verið sóttur til saka.



 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Góðar fréttir: egypskur bloggari leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að egypskur bloggari hafi verið leystur úr haldi. Hann var handtekinn eftir að hann ýjaði að frændhygli innan herafla landsins á bloggi sínu.

 

Góðar fréttir: hvítrússneskur andófsmaður og rokkari leystur úr haldi í Úkraínu

Amnesty International fagnar því að hvítrússneska andófs- og rokktónlistarmanninum Igor Koktysh hafi verið sleppt eftir tvö og hálft ár í varðhaldi í Úkraínu.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.