Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: þrýstu á kínversk stjórnvöld að rannsaka atburðina á Torgi hins himneska friðar

Lýðræðissinni stöðvar skriðdreka á Torgi hins himneska friðar árið 1989

Lýðræðissinni stöðvar för kínverskra skriðdreka á Torgi hins himneska friðar árið 1989

 

Dagana 3. til 4. júní 2009 verða 20 ár liðin frá mótmælunum á Torgi hins himneska friðar í Beijing í Kína, sem kínversk yfirvöld bældu niður með harðri hendi. Sannleikurinn um harkalegar aðgerðir kínverskra yfirvalda verður allur að fá að koma í ljós.

Þann 3. til 4.júní 1989 voru hundruð óvopnaðra kínverskra borgara sem kölluðu eftir lýðræðislegum umbótum drepnir og margir aðrir særðir eða handteknir. Taktu þátt og hvettu formann fastanefndar kínverska þingsins til að koma á laggirnar opinni og óháðri rannsókn á atburðunum á Torgi hins himneska friðar árið 1989.

Skrifaðu undir og þrýstu á kínversk stjórnvöld að rannsaka atburðina og hætta ofsóknum gegn baráttufólki sem leitar réttlætis fyrir þá sem sættu ofbeldi stjórnvalda !

 

Undirskriftasíðan



 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Góðar fréttir: egypskur bloggari leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að egypskur bloggari hafi verið leystur úr haldi. Hann var handtekinn eftir að hann ýjaði að frændhygli innan herafla landsins á bloggi sínu.

 

Góðar fréttir: hvítrússneskur andófsmaður og rokkari leystur úr haldi í Úkraínu

Amnesty International fagnar því að hvítrússneska andófs- og rokktónlistarmanninum Igor Koktysh hafi verið sleppt eftir tvö og hálft ár í varðhaldi í Úkraínu.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.