Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: krefstu virðingar fyrir íbúa fátækrahverfa Nairobi í Kenía

Frá fátækrahverfum Nairobi

Frá fátækrahverfum Nairobi

Meira en helmingur íbúa Nairobi – um tvær milljónir manna – býr í fátækrahverfum og óformlegum byggðum. Jarðnæði þessa helmings þekur einungis um 1 prósent af nýtanlegu landrými borgarinnar og íbúarnir búa við ófullnægjandi aðgang að vatni, heilsugæslu, skólum og annarri grunnþjónustu.

Allt að einni milljón býr í Kiberia, stærsta fátækrahverfi Nairobi, á litlu svæði kringum meginjárnbrautarteina borgarinnar. Flestir þeirra afla tæplega nægilegs fjár til að leigja sér viðarskúr með moldargólfi og bárujárnsþaki án salernis eða rennandi vatns.

Íbúar fátækrahverfanna eiga stöðugt á hættu að vera bornir út með valdi, sem er ólöglegt samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum. Mikilli hörku er iðulega beitt við útburðinn og fólk fær engar bætur, þrátt fyrir að hafa misst heimili sín, fyrirtæki og eigur.

Stundum eru það kaupsýslumenn, sem standa að baki útburðinum, og stundum eru það stjórnvöld. Íbúar Deep Sea hverfisins hafa ítrekað sætt útburði stjórnvalda. Stundum er fólk borið út vegna fyrirhugaðra framkvæmda stjórnvalda, eins og vegalagningar.

Kenísk stjórnvöld hafa gert áætlun um endurbætur í fátækrahverfum landsins. Því ber að fagna en enn bólar ekkert á aðgerðum fyrir íbúa fátækrahverfa Nairobi.

 

Sendu bréf og þrýstu á stjórnvöld í Kenía að gera úrbætur í þágu íbúa fátækrahverfa landsins !

Prentaðu út bréfið hér að neðan og sendu til stjórnvalda í Kenía:

 

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali

 

Lestu meira




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica