Gríptu til aðgerða: verjum þá sem mótmæla niðurstöðum kosninganna í Íran

Mótmælendur í Teheran
Fólk, mestmegnis stuðningsfólk forsetaframbjóðandans Mir Hossein Mousavi, hefur mótmælt á götum Teheran og annarra borga. Margir hafa verið drepnir og hundruð handtekin.
Amnesty International telur öryggissveitir líklegar til að beita mótmælendur áframhaldandi ofbeldi. Hinir handteknu eiga á hættu að sæta pyndingum og annarri illri meðferð.
Hvettu írönsk stjórnvöld til að gæta hófs í samskiptum sínum við mótmælendur og tryggja að hinir handteknu verði ekki pyndaðir eða látnir sæta annarri illri meðferð.
Sendu bréf til sendiherra Íran gagnvart Íslandi !
Þú getur ýmist prentað út bréfið og sent eða sent það í tölvupósti á iremb@iran-embassy-oslo.no
Settu í subject line: Peaceful protests must not be met with violence
