Gríptu til aðgerða

Gríptu til aðgerða: Shell geri hreint fyrir sínum dyrum

Myndband frá Amnesty International um olíuvinnslu Shell í Nígeríu

 

Árið 1956 hóf stórfyrirtækið Shell fyrst að vinna olíu á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu en 95% af útflutningstekjum landins byggja á olíu- og gasvinnslu. Þrátt fyrir að olíuvinnsla Shell hafi skilað ríkinu auknum tekjum lifa 70% almennra borgara undir fátæktarmörkum.

Gífurleg olíumengun og umhverfisspjöll hafa hlotist af starfsemi Shell sem hefur alvarleg heilsuspillandi áhrif á íbúanna og ógnar lífsviðurværi þeirra, þar á meðal fiskveiði og landbúnaði. Afleiðingarnar eru aukin fátækt og örbirgð. Íbúar eru sjaldnast upplýstir um þau áhrif sem olíuvinnsla Shell á svæðinu hefur á mannréttindi og umhverfi þeirra.

Þrátt fyrir að Shell hafi árið 2008, lofað umbótum og ábyrgari starfssemi í Nígeríu er enn hyldýpisgjá á milli loforða og efnda.

Rétturinn til heilsusamlegs umhverfis er mannréttindi. Amnesty International skorar á nýjan framkvæmdastjóra Shell í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Hollandi (Royal Dutch Shell) að hefja nýjan kafla í starfsemi Shell á óseyrum Nígerfljóts, þar sem ábyrgð og gagnsæi eru sett á oddinn og mannréttindi virt. Nígería er stærsti olíuframleiðandi Afríku og fimmti stærsti olíuinnflytjandi til Bandaríkjanna.

 

Gríptu til aðgerða: sendu bréf og þrýstu á forstjóra Shell að virða mannréttindi !

Bréf til forstjóra Shell




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica