Gríptu til aðgerða

Mjanmar: frelsið Aung San Suu Kyi !

Myndband frá Amnesty International um Aung San Suu Kyi

Aung San Suu Kyi hefur nú verið dæmd fyrir að „brjóta ákvæði stofufangelsis síns“. Hún hefur setið í fangelsi í 13 af síðustu 20 árum. Hún er ein af yfir 2.100 pólitískum föngum í Mjanmar.

Aung_San_Suu_Kyi

Aung San Suu Kyi

Engar raunverulegar umbætur í mannréttindamálum geta orðið í Mjanmar fyrr en henni verður sleppt. Aung San Suu Kyi hefur með hugrekki sínu og staðföstu andófi orðið tákngervingur vonar og hvati fyrir landsmenn sína og heiminn allan.

Gríptu til aðgerða: sendu bréf og þrýstu á stjórnvöld í Mjanmar að leysa Aung San Suu Kyi úr haldi!

Bréf til stjórnvalda í Mjanmar

 

Lestu meira



 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Góðar fréttir: egypskur bloggari leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að egypskur bloggari hafi verið leystur úr haldi. Hann var handtekinn eftir að hann ýjaði að frændhygli innan herafla landsins á bloggi sínu.

 

Góðar fréttir: hvítrússneskur andófsmaður og rokkari leystur úr haldi í Úkraínu

Amnesty International fagnar því að hvítrússneska andófs- og rokktónlistarmanninum Igor Koktysh hafi verið sleppt eftir tvö og hálft ár í varðhaldi í Úkraínu.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.