Gríptu til aðgerða

Hvettu ríkisstjórnir til að staðfesta samning um fólk sem látið er hverfa

Mynd eftir son manns sem var látinn hverfa í Pakistan

Mynd eftir son manns sem var látinn hverfa í Pakistan

 

Sunnudagurinn 30. ágúst var tuttugasti og sjötti alþjóðadagur horfinna. Amnesty International og ýmis önnur samtök, félög fjölskyldna horfinna og grasrótarhópar minnast þá horfinna og krefjast réttlætis til handa þeim sem hafa verið látnir hverfa.

Stjórnvöld nota þvinguð mannshvörf sem kúgunartæki til að bæla niður andóf og stjórnarandstöðu, og til að ofsækja trúarhópa, stjórnmálahreyfingar og fólk af ákveðnum uppruna.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti alþjóðasamning árið 2006 til verndar öllu fólki gegn þvinguðum mannshvörfum. Þegar samningurinn tekur gildi mun hann verða öflugt tæki til að koma í veg fyrir þvinguð mannshvörf, leiða í ljós sannleikann um slíka glæpi, refsa hinum seku og tryggja fórnarlömbum og fjölskyldum þeirra réttlæti.
Samningurinn mun taka gildi þegar 20 ríki hafa staðfest hann. Nígería varð 13 ríkið til að gera slíkt þann 27. júlí 2009. Sjö ríki til viðbótar þurfa því að staðfesta samninginn.
Amnesty International hvetur öll stjórnvöld sem ekki hafa staðfest samninginn að gera það sem allra fyrst. Með samstilltu átaki verður unnt að fá sjö ríki til að staðfesta hann fyrir árslok 2009.

 

Hjálpaðu okkur að gera þetta að veruleika !

Sendu bréf eða tölvupóst til stjórnvalda í Portúgal (netfangið er: gsg.geral@mne.pt)

Bréfið til portúgalskra stjórnvalda

 

Staðfesting ríkja á samningnum er sterk skilaboð um að þvinguð mannshvörf verði ekki liðin og hann mun verða öflugt tæki fyrir alla þá sem leita ástvina sinna.

Amnesty International beinir nú sjónum sínum að eftirtöldum 10 ríkjum til að staðfesta samninginn: Búrúndí, Grænhöfðaeyjum, Costa Rica, Líbanon, Marokkó, Pakistan. Paragvæ, Portúgal, Serbíu og Timor Leste.




Góðar fréttir

Góðar fréttir: dómstóll í Slóvakíu úrskurðar gegn aðskilnaði Róma-barna í skólakerfinu!

Dómstóll í Slóvakíu bannaði nýverið aðskilnað Róma-barna í grunnskóla í þorpinu Šarisské Michaľany, í Prešov héraði.

Lesa meira
 

Góðar fréttir – janúar 2012 – mexíkósk stjórnvöld gangast við ábyrgð vegna nauðgana

Mexíkósk stjórnvöld hafa opinberlega gengist við ábyrgð vegna nauðgunar Valentinu Rosendo Cantú (sjá upplýsingar um málið hér).

Lesa meira
 

Góðar fréttir: samviskufangar leystir úr haldi í Mjanmar

Verkalýðsfrömuðurinn Su Su Nway frá Mjanmar var leyst úr haldi í vikunni, ásamt samlöndum sínum Zarganar og Zaw Htet Ko Ko.

Lesa meira
 

Góðar fréttir: bareinskt ljóðskáld leyst úr haldi!

Ayat al-Qarmezi, sem er bareinskt ljóðskáld og háskólanemi í Kennaraháskóla Bareins, var dæmd í eins árs fangelsi fyrir að lesa ljóð.

Lesa meira
 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica