Gríptu til aðgerða
Gríptu til aðgerða: Japan: réttlæti fyrir Hakamada Iwao
Viðtal við dómara í máli Hakamada Iwao sem telur hann saklausan
Dauðadeildir í Japan gera fanga geðsjúka. Japan var eitt helsta aftökuríki heims árið 2008 og nú eru 102 fangar á dauðadeild við mjög erfiðar aðstæður. Hakamada Iwao, sem nú er 73 ára, hefur sýnt merki um geðsýki síðustu 30 ár. Honum er haldið í einangrun, þar sem hann verður að sitja stöðugt og má ekki horfa í augu fangavarða sinna. Tími er kominn til að ný ríkisstjórn í Japan geri breytingar á þessu kerfi.
Talið er að Hakamada Iwao sé sá einstaklingur í heiminum, sem lengst hefur setið á dauðadeild. Hann hefur nú verið þar í 41 ár, þar af í 28 ár í einangrun.

Hakamada Iwao
Hann var dæmdur árið 1968 fyrir morð á fjögurra manna fjölskyldu, aðallega á grundvelli játningar, sem talið er að hafi verið fengin fram með hótunum, og hann dró til baka við réttarhöldin.
Einn af þremur dómurum við þau réttarhöld hefur lýst því yfir opinberlega að hann telji að Hakamada Iwao sé saklaus.
Gríptu til aðgerða: sendu dómsmálaráðherra Japan bréf vegna Hakamada Iwao og hvettu til réttarúrbóta.
Lestu nýja skýrslu Amnesty International um aftökur á geðsjúkum í Japan

